Sálgæsla

- nám á framhaldsstigi háskóla
Umsóknarfrestur til og með 15. maí 2024 Verð 790.000 kr.

Námið hefst 9. sept. 2024 og lýkur með útskrift í júní 2025.

Dagbjört Eiríksdóttir, Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson og Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, með aðkomu annarra kennara og gestafyrirlesara.

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námsbraut

Í samstarfi við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Námið samsvarar 40 ECTS einingum.

ATH! Rafrænn kynningarfundur um námið verður haldinn 3. maí. Skráning fer fram hér:
Kynningarfundur 3. maí

Markmið

Markmið námsins er að veita nemendum þekkingu í grunnatriðum sálgæslu með einstaklingum, fjölskyldum og hópum. Námið byggir á að greina og vinna með trúar- og tilvistar þarfir, upplifanir og úrvinnslu reynslu. Í öllum námskeiðum er byggt á sjálfsrýni og unnið með verklegar æfingar sem miða að því að nemendur reyni sig í hlutverkum. Um leið rýna nemar áhrif efnisins og verkefnanna á sjálf sig sem og áhrif eigin sögu á viðfang sitt.

Kennslufyrirkomulag

Námið samanstendur af fjórum 10 ECTS eininga námskeiðum. Kennsla hvers námskeiðs fer fram í tveimur fjögurra daga staðnámslotum frá kl. 9:00 - 14:00.

9. - 12. september
23. - 26. september
28. - 31. október
11. - 14. nóvember
20. - 23. janúar
3. - 6. febrúar
10. - 13. mars
31. mars - 3. apríl

Birt með fyrirvara um breytingar.
Námið er kennt á íslensku og lesefni er á íslensku og ensku.

Námsmat

Krafist er virkrar þátttöku nemenda í hverri kennslulotu, efnislegrar þekkingar á námsefninu, þátttöku í umræðutímum og æfingum. Nemendur þurfa að skila verkefnum, taka þátt í æfingum og standast próf.

Fagráð

Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, dósent við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ
Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ
Dr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, prestur við Neskirkju
Áslaug Björt Guðmundardóttir, verkefnastjóri hjá Endurmenntun HÍ
Jóhanna Rútsdóttir, námsstjóri hjá Endurmenntun HÍ

Fyrir hverja

Nám í sálgæslu er á meistarastigi. Umsækjendur þurfa því að hafa lokið þriggja ára prófi á grunnstigi háskóla, s.s. BA-prófi, B.Ed.-prófi eða BS-prófi.

Umsókn

Með umsókn þarf að fylgja:
- Prófskírteini frá háskóla.
- Greinargerð þar sem umsækjandi tilgreinir ástæður fyrir námsvali, hámark ½ blaðsíða.
- Ferilskrá (CV) er inniheldur náms- og starfsferil sem og aðrar upplýsingar sem stutt geta umsóknina.

Greiðslufyrirkomulag

Hægt er að semja um greiðslufyrirkomulag áður en nám hefst. Nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag má sjá hér.

Aðrar upplýsingar

Nánari upplýsingar um námið má finna í námsvísi (PDF).

Lánamöguleikar & styrkir

Vakin er athygli á að ýmis stéttarfélög og margir vinnuveitendur veita góða styrki til náms.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Sálgæsla

Verð
790000