Valmynd
Ekki missa af spennandi námskeiðum! Skráðu þig á póstlista Endurmenntunar HÍ!
Mið. 8. maí. kl. 09:00 - 12:00
3 klst.Eggert Þ. Þórarinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands
Endurmenntun, Dunhaga 7.
Markviss áhættustýring dregur úr áhættu í rekstri fyrirtækja og eykur þannig virði þeirra. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur öðlist þekkingu og færni í notkun á helstu áhættuvörnum sem notaðar eru á innlendum fjármálamarkaði.
Á námskeiðinu verður farið yfir grunnatriði áhættustýringar, með það að markmiði að þátttakendur séu betur í stakk búnir að greina áhættur í rekstri fyrirtækja. Farið verður yfir helstu tegundir af áhættuvörnum og fjallað sérstaklega um afleiður. Námskeiðið er sniðið að innlendum aðstæðum og þeim áhættuvörnum sem fyrirtækjum hér á landi standa helst til boða.
Grunnatriði áhættustýringar.
Áhættuvarnir og áhrif þeirra.
Helstu tegundir afleiða.
Gjaldeyrismarkað og íslensku krónuna.
Aukin meðvitund um áhættu í rekstri.
Aukin þekking á helstu tegundum afleiða og hvernig þær eru notaðar til að stýra áhættu.
Aukin þekking á áhættuvörnum.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum, greinendum og hagfræðingum sem koma að ákvörðunum um rekstur og fjármál fyrirtækja. Enn fremur nýtist það þeim sem vilja auka skilning sinn á áhættuvörnum.
Þetta námskeið hefur verið samþykkt af prófnefnd verðbréfaréttinda og veitir 3 klst. í endurmenntun vegna verðbréfaréttinda.
Eggert Þ. Þórarinsson er aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands. Hann er vélaverkfræðingur frá HÍ, hefur meistaragráðu í fjármálum frá University of Cambridge og er löggiltur verðbréfamiðlari.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Markviss áhættustýring dregur úr áhættu í rekstri fyrirtækja og eykur þannig virði þeirra. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur öðlist þekkingu og færni í notkun á helstu áhættuvörnum sem notaðar eru á innlendum fjármálamarkaði.</span>