Staðnámskeið

Nærrannsóknir

- POCT (point of care testing)
Afsláttur af námskeiðsgjaldi.
Snemmskráning til og með 11. maí
Almennt verð 28.500 kr. 25.900 kr.
Nýtt

Þri. 21. maí kl. 13:00 - 16:00

3 klst.

Umsjón hefur Helga Sigrún Sigurjónsdóttir er sérfræðingur í lífeindafræði. Ásamt henni flytja erindi: Ólöf Sigurðardóttir sérfræðilæknir á Rannsóknarkjarna LSH, Alda Margrét Hauksdóttir, lífeindafræðingur og gæðastjóri á Rannsóknarsviði LSH og Fabio Como, lífeindafræðingur á Rannsóknarkjarna LSH.

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Mælingar á blóðsýnum/þvagsýnum gerðar nær sjúklingi (t.d. á göngudeild, á læknastöð, á heilsugæslu, á gjörgæslu) kallast nærrannsóknir. Mælingin er oft framkvæmd af sjúkraliða, hjúkrunarfræðingi, lækni en ekki fagfólki á rannsóknarstofu.

Með nýrri tækni koma sífellt fleiri tæki á markað þar sem hægt er með einum blóðdropa að mæla ýmis gildi sem nota má til að túlka og meðhöndla alls konar sjúkdóma. Heilbrigðisstarfsfólki gæti sýnst þetta spara fyrirhöfn og tíma með því að framkvæma mælinguna sjálf og nota niðurstöðurnar án frekari umhugsunar.

Á námskeiðinu er fjallað um ábyrgð notenda í nærrrannsóknum, hvaða stöðlum beri að fylgja og hvernig niðurstöður skuli skráðar í Heilsugátt. Einnig verður kafað ofan í spurningar á borð við: Er tækið að mæla rétt? Hvernig má tryggja réttar niðurstöður? Aðrar mikilvægar spurningar snúast um hvort þetta megi og hvort sjúklingar geti jafnvel gert slíkar mælingar sjálfir? Nærrannsóknir eru framkvæmdar erlendis, er staðan eins þar?

Að loknu námskeiði mun Arctic Therapeutics kynna tæki frá Lumira DX sem notað er við nærrannsóknir.

Á námskeiðinu er fjallað um

POCT – nærrannsóknir – hvað er það?
Framkvæmd staðlaðra rannsókna utan rannsóknarstofa.
Gæðamál við nærrannsóknir.
Nærrannsóknir erlendis.
Tæki sem notuð eru til nærrannsókna og nýjungar á því sviði.

Ávinningur þinn

Þekking á kröfum um nærrannsóknir.
Þekking á stöðlum fyrir nærrannsóknir.
Skilningur á því hvernig gæðamál eiga að virka.
Innsýn í hvernig nágrannaþjóðir okkar gera þetta.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir heilbrigðisstarfsfólk, lífeindafræðinga, hjúkrunarfræðinga, lækna og sjúkraliða.

Nánar um kennara

Umsjón hefur Helga Sigrún Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í lífeindafræði. Hún starfar á Rannsóknarkjarna Landspítala og hefur yfirumsjón með nærrannsóknum auk þess að sjá um kennslu á nærrannsóknartæki sjúkrahússins. Hún hefur kennt efnið í HÍ yfir nokkurra ára skeið. Ásamt því hefur hún þá hefur hún haldið fyrirlestra um efnið bæði á ráðstefnum og fyrir fagfólk.
Einnig eru eftirfarandi sérfræðingar með erindi:
Ólöf Sigurðardóttir sérfræðilæknir á Ransóknarkjarna LSH, Alda Margrét Hauksdóttir lífeindafræðingur og gæðastjóri á Rannsóknarsviði LSH og Fabio Como lífeindafræðingur á Rannsóknarkjarna LSH.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Nærrannsóknir

Verð
28500

<span class="fm-plan">M&aelig;lingar &aacute; bl&oacute;&eth;s&yacute;num/&thorn;vags&yacute;num ger&eth;ar n&aelig;r sj&uacute;klingi (t.d. &aacute; g&ouml;ngudeild, &aacute; l&aelig;knast&ouml;&eth;, &aacute; heilsug&aelig;slu, &aacute; gj&ouml;rg&aelig;slu) kallast n&aelig;rranns&oacute;knir. M&aelig;lingin er oft framkv&aelig;md af sj&uacute;krali&eth;a, hj&uacute;krunarfr&aelig;&eth;ingi, l&aelig;kni en ekki fagf&oacute;lki &aacute; ranns&oacute;knarstofu.</span>