Fjarnámskeið

Microsoft Planner og Teams

- verkefnastjórnun og skipulag
Verð 29.400 kr.
Aðeins 7 sæti laus
Í gangi

Fim. 11. apríl kl. 13:00 - 16:00

3 klst.

Atli Þór Kristbergsson, ráðgjafi og kennari

Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.

Námskeið

Microsoft Teams, ásamt öðrum Microsoft 365 (M365) afurðum hefur verið innleitt hjá fjölda fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga enda frábært tæki til að halda utan um teymi, fjarfundi, deila gögnum, spjalla (e. chat) og margt fleira.

Færri vita af Microsoft Planner og því sem það hefur fram að færa en með því má skipuleggja verkefni, útdeila verkþáttum, virkja áminningar og sjá framvindu verkefna frá mælaborði.

Með Microsoft Planner getur þú og teymið þitt sett fram áætlun um verkefni, deilt út verkþáttum, átt í samskiptum ykkar á milli og séð framvindu verkþátta frá mælaborði.
Haldið utan um fundargerðir, verið með upplýsingasíðu og fleira tengt verkefninu.

Þetta námskeið fjallar fyrst og fremst um hvernig þú getur nýtt þér Planner við skipulag og verkefnastjórnun og tengingu Planner við Teams.

Á námskeiðinu er fjallað um

Uppsetningu nýs verkefnateymis í Microsoft Teams.
Uppsetningu Microsoft Planner.
Verkefnaræs – hugarflug.
Hugarflug í tengslum við verkefni (e. tasks).
Fötur, verk og fleira.
Setja ábyrgð.
Virkjun tímasetninga og áminninga.
Hvar þær birtast og hvernig má nálgast þær.
Hengja ítarefni við verk.
Notkun á Wiki í teyminu ásamt „Microsoft Teams lists“.
Mælaborð.
Skjölun á verkefninu & fundargerðir.
Notkun á smáforritum fyrir iOS og Android.
Og fleiri atriði tengd Planner.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað notendum Microsoft 365 pakkans sem vilja nýta sér möguleika hans enn betur. Hér er áherslan á verkefni, verkefnastjórn og önnur samskipti innan verkefnateymis. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi þekkingu á Teams og/eða hafi lokið grunnnámskeiðinu, Microsoft Teams & OneDrive hjá EHÍ.

Nánar um kennara

Atli Þór Kristbergsson hefur starfað við upplýsingatækni frá árinu 1998, fyrst sem kerfis- og vefstjóri og sem deildarstjóri upplýsingatæknideildar Íslandsbanka svo eitthvað sé nefnt. Á síðari árum hefur hann einkum sinnt kennslu, ráðgjöf og vefsíðugerð.

Aðrar upplýsingar

Gott er að hafa aðgang að Microsoft Teams meðan á námskeiðinu stendur frá vinnustöð eða í gegnum vafra.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Microsoft Planner og Teams

Verð
29400