Staðnámskeið

Fyrirmyndar skjalastjórn

- vinnustofa
Verð 73.600 kr.
Í gangi

Ekki missa af spennandi námskeiðum! Skráðu þig á póstlista Endurmenntunar HÍ!

Þri. 16. apríl kl. 12:30 - 16:30 og fim. 18. apríl kl. 8:30 - 12:30

8 klst.

Þorgerður Magnúsdóttir, gæðastjóri Varðar, MIS í upplýsingafræði og CIP vottuð og Eva Ósk Ármannsdóttir, skjala- og upplýsingastjóri hjá FSRE, BA-gráða í upplýsingafræði og diplóma í jákvæðri sálfræði.

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Vilt þú viðhalda góðri skjalastjórn á þínum vinnustað? Í þessari vinnustofu gefst kostur á að spreyta sig á mikilvægum þáttum skjalastjórnunar. Teknar verða fyrir æfingar í gerð skjalastefnu, skjalavistunaráætlunar, málalykils og grisjunarheimilda, umsókn um rafræn skil og umsókn um afhendingu pappírsgagna til Þjóðskjalasafnins.

Á námskeiðinu er fjallað um

Gerð skjalastefnu.
Gerð skjalavistunaráætlunar.
Gerð málalykils.
Umsókn um grisjunarheimild.
Umsókn um rafræn skil.
Umsókn um afhendingu pappírsgagna.

Ávinningur þinn

Þjálfun í framkvæmd ofangreindra atriða.
Innsýn í bestu starfsaðferðir við gerð helstu grunnskjala í skjalastjórn.

Fyrir hverja

Fyrir þá sem vinna með stjórnun gagna á sínum vinnustað. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi lokið formlegu námi í skjalastjórn.

Vinnustofan er hugsuð fyrir þátttakendur sem áður hafa lokið námskeiðinu
Fyrirmyndar skjalastjórn - aðferðir og hagnýt ráð. Vinnustofan er þó sjálfstætt framhald og allir velkomnir.

Nánar um kennara

Þorgerður Magnúsdóttir er gæðastjóri Varðar, MIS í upplýsingafræði og CIP vottuð. Hún hefur umtalsverða reynslu af gæða- og skjalamálum í fjármálageiranum.

Eva Ósk Ármannsdóttir er skjala- og upplýsingastjóri hjá FSRE. Hún er með BA-gráðu í upplýsingafræði og diplóma í jákvæðri sálfræði. Hún hefur talsverða reynslu í skjalastjórn hjá ríki og sveitarfélögum.

Aðrar upplýsingar

Þátttakendur þurfa að mæta með fartölvu.

Þátttakendum gefst kostur á að senda inn beiðni um viðfangsefni, allt að viku fyrir vinnustofuna, hafi þeir óskir um að önnur umfjöllunarefni verði tekin fyrir en þau sem hér eru talin upp.

Námskeiðið byggist upp á umræðum og léttri en gagnlegri verkefnavinnu í hópum sem og einstaklingsverkefnum.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Fyrirmyndar skjalastjórn

Verð
73600