Staðnámskeið

Mannauðsmál frá A til Ö

- tækifæri og áskoranir
Skráning til og með 5. september Verð 345.000 kr.
Nýtt

Fim. 19. sept. - 10. des. kl. 9:00-15:30, aðra hvora viku (7x). Kennt annan hvern fimmtudag á tímabilinu. Lokatími námskeiðs er þó þri. 10. desember 2024.

42 klst.

Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir – sérfræðingar í mannauðsmálum og eigendur AUKI – mannauður og stjórnendaráðgjöf, auk gestakennara.

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Á námskeiðinu er fjallað er um hagnýt atriði mannauðsstjórnunar með skýrum hætti. Stjórnendur standa frammi fyrir nýjum áskorunum vegna breytinga á starfsumhverfinu, en í þeim liggja jafnframt fjölmörg tækifæri. Fjarvinna og sveigjanlegt starfsumhverfi, velferð starfsmanna og fjölbreytileiki eru á meðal umfjöllunarefna.

Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstraust og færni stjórnenda með mannaforráð, m.a. til að leiða einstaklinga og teymi á hvetjandi og uppbyggilegan hátt til aukins árangurs. Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að vera betur í stakk búnir til að nýta sér hagnýtar aðferðir mannauðsstjórnunar í starfi sem stjórnendur og stuðla að eigin starfsþróun í síbreytilegu starfsumhverfi.

Á námskeiðinu er fjallað um

Stjórnendahlutverkið.
Ráðningarferlið frá A til Ö.
Starfsmannasamtöl, hvatningu, frammistöðu og endurgjöf.
Starfsþróun.
Breytingastjórnun.
Erfið starfsmannamál.
Fjölbreytileiki á vinnustöðum.
Vinnustaðamenningu.
Samskipti og upplýsingaflæði.
Velferð á vinnustað.
Nýja starfsumhverfið – tækifæri og áskoranir.

Ávinningur þinn

Aukið öryggi í stjórnendahlutverkinu.
Aukin færni í ráðningum og nýliðamóttöku.
Færni til skilvirkari samskipta og til að takast á við erfið starfsmannamál.
Leikni í að efla liðsheild og stuðla að góðum starfsanda.
Færni í að leiða fjölbreytilegan starfshóp.
Færni í að stuðla að markvissri starfsþróun og leiða breytingar.

Kennslufyrirkomulag

Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, umræðum og verklegum æfingum. Hópvinna er unnin á kennsludögum og ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni í hópum á milli kennsludaga.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á virka þátttöku og samtal milli þátttakenda. Þannig er stuðlað að auknum lærdómi og tengslamyndun.

Þátttakendur fá aðgang að námsumsjónarkerfinu Canvas á meðan námskeiði stendur.

Fyrir hverja

Millistjórnendur og nýja stjórnendur sem vilja efla hæfni sína í mannauðsstjórnun.
Alla þá sem vilja tileinka sér fagleg vinnubrögð innan skipulagsheilda og stuðla að heilbrigðu og öflugu starfsumhverfi.
Námskeiðið er einkum sniðið að stjórnendum sem ekki hafa sérstaka menntun í mannauðsstjórnun og stjórnendum smærri fyrirtækja sem ekki eru með sérstaka mannauðsdeild.

Nánar um kennara

Kennarar eru þær Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir – sérfræðingar í mannauðsmálum og eigendur AUKI – mannauður og stjórnendaráðgjöf.

Auk þeirra sinna kennslu:

Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við Háskóla Íslands og borgarfulltrúi.
Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðsstjóri Isavia.
Guðríður Sigurðardóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum og einn eiganda Attentus.
Þóra Christiansen, aðjúnkt við Háskóla Íslands.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Mannauðsmál frá A til Ö

Verð
345000

<span class="fm-plan">&Aacute; n&aacute;mskei&eth;inu er </span><span class="fm-plan">fjalla&eth; er um hagn&yacute;t atri&eth;i mannau&eth;sstj&oacute;rnunar me&eth; sk&yacute;rum h&aelig;tti. Stj&oacute;rnendur standa frammi fyrir n&yacute;jum &aacute;skorunum vegna breytinga &aacute; starfsumhverfinu, en &iacute; &thorn;eim liggja jafnframt fj&ouml;lm&ouml;rg t&aelig;kif&aelig;ri. Fjarvinna og sveigjanlegt starfsumhverfi, velfer&eth; starfsmanna og fj&ouml;lbreytileiki eru &aacute; me&eth;al umfj&ouml;llunarefna.</span>