Staðnámskeið

Hámörkum árangur með gervigreind - greining og ákvarðanir

Verð 67.000 kr.
Í gangi

Ekki missa af spennandi námskeiðum! Skráðu þig á póstlista Endurmenntunar HÍ!

Mið 17. og fim 18. apríl, kl. 12:30 - 16:30

8 klst.

Þorsteinn Siglaugsson ráðgjafi er með BA-próf í heimspeki, MBA-próf frá INSEAD og er vottaður sérfræðingur í Logical Thinking Process aðferðafræðinni.

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Á þessu námskeiði nýtum við krafta gervigreindarlíkana á borð við ChatGPT, til að efla hugsun og ákvarðanatöku. Við lærum hvernig beita má gervigreindinni til að bæta og flýta verulega greiningu og ákvarðanatöku. Þátttakendur öðlast færni í að nýta gervigreind við greiningu orsaka og afleiðinga gagnvart flóknum viðfangsefnum og auka þannig færni sína í starfi og framtíðarmöguleika

Færni í að eiga samskipti við gervigreindarlíkön (LLM) verður sífellt mikilvægari, enda eru líkönin notuð í sívaxandi mæli til að auðvelda vinnu og auka afköst. Um leið er raunveruleg hætta á að við „útvistum“ í síauknum mæli eigin greiningu og ákvarðanatöku til gervigreindarinnar. Séu líkönin hins vegar notuð markvisst geta þau hjálpað okkur að efla eigin greiningarhæfni og taka betur ígrundaðar ákvarðanir.

Ákvarðanataka og greining á flóknum viðfangsefnum krefst ítarlegrar greiningar orsaka og afleiðinga. Fram að þessu hefur vandinn við slíka greiningu verið sá mikli tími og fyrirhöfn sem hún krefst. Við hneigjumst því gjarnan til þess að stytta okkur leið, sem oft leiðir til illa ígrundaðra ákvarðana. Með markvissri notkun gervigreindar er hægt að flýta verulega fyrir vandaðri greiningu á flóknum viðfangsefnum ásamt því að afhjúpa ómeðvitaðar forsendur sem við nánari skoðun kunna að reynast rangar.

Í þessu námskeiði er útskýrt, skref fyrir skref hvernig nota má gervigreindarlíkön til að hraða og bæta greiningu orsaka og afleiðinga. Notast er við markvissa aðferðafræði við greiningu vandamála og mótun úrlausna, Logical Thinking Process, sem grundvallast á kenningum og aðferðum stjórnunarfrömuðarins Dr. Eliyahu M. Goldratt, og nemendur læra um leið grundvallaratriði hennar.

Markmið námskeiðsins er að efla hæfni þátttakenda í að beita gervigreind við greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum og auka þannig færni þeirra í starfi og framtíðarmöguleika.

Á námskeiðinu er fjallað um

Greiningu og ákvarðanir, sýnilegar og ósýnilegar (explicit, tacit) upplýsingar.
Eigindlega og megindlega (qualitative, quantitative) greiningu og hlutverk röklegrar nálgunar.
Tungumálalíkönin, eiginleika þeirra, styrkleika og veikleika og notkunarmöguleika við greiningu orsaka og afleiðinga.
Yfirlit yfir röklegt hugsunarferli (Logical Thinking Process) og dæmi um notkun.
Beitingu tungumálalíkana við greiningu orsaka og afleiðinga. Dæmi um notkun. Þjálfun í að beita fyrirfram skilgreindum, skipulegum fyrirmælum til að hámarka árangur.

Ávinningur þinn

Þú lærir að beita gervigreind til að hraða og bæta greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum.
Þú færð innsýn í styrkleika og veikleika gervigreindarlíkana þegar kemur að greiningu orsaka og afleiðinga, hvernig nýta má styrkleikana og fást við veikleikana.
Þú kynnist og lærir grundvallaratriði Logical Thinking Process, sem er öflug aðferðafræði fyrir ákvarðanatöku og greiningu.
Þú nærð tökum á aðferðum sem auðvelda þér að nýta gervigreind til að auka eigin afköst, árangur og möguleika í starfi.

Fyrir hverja

Námskeiðið er afar gagnlegt fyrir stjórnendur, sérfræðinga og annað fagfólk sem þarf að taka ákvarðanir um flókin viðfangsefni og vill auka hæfni sína í að beita markvissri greiningu orsaka og afleiðinga með hjálp nýrrar tækni.

Nánar um kennara

Þorsteinn Siglaugsson ráðgjafi er með BA-próf í heimspeki, MBA-próf frá INSEAD og er vottaður sérfræðingur í Logical Thinking Process aðferðafræðinni. Þorsteinn er frumkvöðull í nýtingu gervigreindar við skipulega greiningu og ákvarðanatöku og starfar við ráðgjöf og þjálfun víða um heim á vegum Marris Consulting í París. Hann vinnur jafnframt að þróun hugbúnaðarlausna sem styðja við notkun gervigreindar við greiningu og ákvarðanatöku.

Aðrar upplýsingar

Þátttakendur þurfa að hafa með sér fartölvu eða spjaldtölvu. Ekki er krafa um að hafa greidda áskrift að GPT 4 þótt mælt sé með því, en ókeypis áskrift að GPT 3.5 er skilyrði.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Hámörkum árangur með gervigreind - greining og ákvarðanir

Verð
67000

<span class="fm-plan">&Aacute; &thorn;essu n&aacute;mskei&eth;i n&yacute;tum vi&eth; krafta gervigreindarl&iacute;kana &aacute; bor&eth; vi&eth; ChatGPT, til a&eth; efla hugsun og &aacute;kvar&eth;anat&ouml;ku. Vi&eth; l&aelig;rum hvernig beita m&aacute; gervigreindinni til a&eth; b&aelig;ta og fl&yacute;ta verulega greiningu og &aacute;kvar&eth;anat&ouml;ku. &THORN;&aacute;tttakendur &ouml;&eth;last f&aelig;rni &iacute; a&eth; n&yacute;ta gervigreind vi&eth; greiningu orsaka og aflei&eth;inga gagnvart fl&oacute;knum vi&eth;fangsefnum og auka &thorn;annig f&aelig;rni s&iacute;na &iacute; starfi og framt&iacute;&eth;arm&ouml;guleika</span>