Valmynd
Mán. og mið. 8. - 24. apríl kl. 17:00 - 19:00 (6x)
12 klst.Steinunn Björk Ragnarsdóttir, MA í spænsku
Endurmenntun, Dunhaga 7.
Námskeiðið hentar þeim sem lokið hafa Spænsku I og Spænsku II eða hafa sambærilega þekkingu á spænsku máli. Unnið verður með alla færniþætti (talmál, lestur, hlustun og ritun) en þó verður sérstök áhersla á talmál.
Í lok námskeiðs ættu nemendur að geta tjáð sig í rituðu og mæltu máli um kunnugleg málefni sem tengjast daglegu lífi og ferðalögum í spænskumælandi löndum.
Helstu málfræðiatriði spænskunnar.
Hagnýtan orðaforða sem nýtist í daglegu lífi og ferðum um hinn spænskumælandi heim.
Menningu spænskumælandi landa.
Aukin geta til að tjá sig á spænsku, sérstaklega í töluðu máli.
Að geta tjáð sig í ræðu og riti um kunnugleg málefni sem tengjast daglegu lífi og ferðalögum.
Að geta skilið samtöl á spænsku um kunnugleg málefni.
Námskeiðið er fyrir alla þá sem lokið hafa Spænsku II eða hafa sambærilega þekkingu á tungumálinu.
Þátttakendur fá kennsluefni þegar þeir mæta í fyrsta tímann og einskis frekari undirbúnings er krafist.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Námskeiðið hentar þeim sem lokið hafa Spænsku I og Spænsku II eða hafa sambærilega þekkingu á spænsku máli. Unnið verður með alla færniþætti (talmál, lestur, hlustun og ritun) en þó verður sérstök áhersla á talmál.</span>