Valmynd
Mán. og mið. 26. apríl - 12. maí kl. 17:00 - 19:00 (6x)
Steinunn Björk Ragnarsdóttir, MA í spænsku
Endurmenntun, Dunhaga 7.
Námskeiðið hentar þeim sem lokið hafa Spænsku I og Spænsku II eða hafa sambærilega þekkingu á spænsku máli. Unnið verður með alla færniþætti (talmál, lestur, hlustun og ritun) en þó verður sérstök áhersla á talmál.
Í lok námskeiðs ættu nemendur að geta tjáð sig í rituðu og mæltu máli um kunnugleg málefni sem tengjast daglegu lífi og ferðalögum í spænskumælandi löndum.
• Helstu málfræðiatriði spænskunnar.
• Hagnýtan orðaforða sem nýtist í daglegu lífi og ferðum um hinn spænskumælandi heim.
• Menningu spænskumælandi landa.
• Aukin geta til að tjá sig á spænsku, sérstaklega í töluðu máli.
• Að geta tjáð sig í ræðu og riti um kunnugleg málefni sem tengjast daglegu lífi og ferðalögum.
• Að geta skilið samtöl á spænsku um kunnugleg málefni.
Námskeiðið er fyrir alla þá sem lokið hafa Spænsku II eða hafa sambærilega þekkingu á tungumálinu.
Þátttakendur fá kennsluefni þegar þeir mæta í fyrsta tímann og einskis frekari undirbúnings er krafist.
Fyrirvari
Ef óviðráðanlegar aðstæður, s.s. sóttvarnarreglur, koma í veg fyrir að hefðbundin kennsla geti farið fram í húsnæði Endurmenntunar á auglýstum námskeiðstíma verður brugðist við með því að:
A – færa námskeiðið og kynna skráðum þátttakendum nýjar dagsetningar með eins góðum fyrirvara og unnt er,
eða
B – kenna námskeiðið sem fjarnámskeið í gegnum ZOOM á áður auglýstum tíma.
Komi til ofangreindra breytinga fá skráðir þátttakendur allar nauðsynlegar upplýsingar sendar í tölvupósti og geta þeir þá tekið ákvörðun um skráningu sína í ljósi breyttra forsenda.
<span class="fm-plan">Námskeiðið hentar þeim sem lokið hafa Spænsku I og Spænsku II eða hafa sambærilega þekkingu á spænsku máli. Unnið verður með alla færniþætti (talmál, lestur, hlustun og ritun) en þó verður sérstök áhersla á talmál.</span>