Staðnámskeið

Lagasmíðar og textagerð

Verð 199.900 kr.
Í gangi

Mán. og fim. 8. apríl - 16. maí kl. 19:30 - 22:00 (10x). Ekki er kennt sumardaginn fyrsta (25.4.) og uppstigningardag (9.5). Lagasmíðadagur er laugardaginn 4. maí kl. 9:00 - 17:00, staðsetning verður tilkynnt síðar.

33 klst.

Hildur Kristín Stefánsdóttir, Sóley Stefánsdóttir og Jóhannes Ágúst Sigurjónsson.

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið


Lagasmíðar og textagerð er námskeið fyrir alla sem eru áhugasamir um að búa til tónlist – hvort sem þeir hafa einhvern grunn í tónlist eða ekki. Á Íslandi er gríðarlega sterk tónlistarmenning og í dag geta í rauninni allir búið til tónlist. Fyrir suma eru lagasmíðar skapandi áhugamál en fyrir aðra eru þær leið til tjáningar. Með grunnskilningi á lagasmíðum, þjálfun í textagerð og innsýn í helstu forrit sem hægt er að nýta til að taka upp og búa til tónlist geta lagasmíðar þó orðið markvissari.

Á námskeiðinu öðlast þátttakendur þekkingu á lagasmíðum og innsýn í lagasmíðar starfandi tónlistarmanna. Farið er yfir uppbyggingu lags og texta, leiðir til að ýta undir sköpun og einnig þjálfa þátttakendur upp leikni með því að glíma við verkefni. Auk þess verður farið yfir helstu forrit og búnað sem tengjast lagasmíðum og þátttakendur læra á einfaldan hátt grunnatriði í tengslum við upptökur og pródúseringu.

Á námskeiðstímanum er farið einn dag í lagasmíðabúðir (á höfuðborgarsvæðinu) þar sem þátttakendur semja lag í samvinnu við aðra.

Á námskeiðinu er fjallað um

Uppbyggingu lags og samspil einstaka kafla þess.
Ýmis hugtök sem tengjast lagasmíðum, texta- og ljóðagerð, upptökum og pródúseringu.
Mismunandi aðferðir sem nota má við lagasmíðar, einn eða með öðrum.
Textagerð, innblástur og aðferðir.
Heimastúdíóið og forrit til lagasmíða.
Helstu ráða í tónlistarbransanum og leiðir til að koma tónlist á framfæri.

Ávinningur þinn

Aukin þekking á lagasmíðum.
Aukinn skilningur og aukin leikni í textagerð.
Betra yfirsýn yfir ýmis forrit sem tengjast lagasmíðum.
Aukinn skilningur á helstu leiðum til að koma afurð sinni á framfæri.
Aukið sjálfstraust til að geta haldið áfram sköpun sinni.

Markmið

Að námskeiði loknu er gengið út frá því að þátttakendur:
Hafi aukið þekkingu sína og færni í lagasmíðum.
Hafi aukna leikni í textagerð.
Hafi kynnst helstu forritum sem eru mikilvæg fyrir lagasmíðar.
Hafi öðlast skilning á helstu leiðum til að koma afurð sinni á framfæri.
Hafi öðlast aukið sjálfstraust til að geta haldið áfram sköpun sinni.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla þá sem hafa áhuga á lagasmíðum og textasmíðum, hvort sem þeir spila á hljóðfæri eða ekki því ekki er gerð krafa um neina fyrri tónlistarkunnáttu þó hún nýtist auðvitað þeim sem hana hafa. Einnig gæti það hentað þeim sem vilja fá innsýn í heim raftónlistar- og upptökuforrita sem geta nýst tónlistarfólki við lagasmíðar. Góð byrjun út í áframhaldandi lagasmíðar.

Nánar um kennara

Hildur Kristín Stefánsdóttir (Hildur) er lagahöfundur, pródúser, tónlistarkona og kennari úr Reykjavík. Hún hefur verið virk í íslensku tónlistarsenunni frá árinu 2007 þegar hún stofnaði hljómsveitina Rökkurró. Síðan þá hefur hún unnið við sólóverkefni sitt en hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir popplag ársins 2017 en það var lagið „I’ll Walk With You“. Hún hefur átt þrjú lög í úrslitum Söngvakeppninnar og er nú, ásamt Cell7, í danstónlistarverkefninu RED RIOT. Hildur hefur unnið mikið erlendis frá árinu 2017 sem lagahöfundur og pródúser með fjölmörgum listamönnnum á Norðurlöndunum, í Bretlandi og í Bandaríkjunum.

Hildur hefur kennt lagasmíðar í MÍT deild FÍH, í grunnskólum og einnig verið með námskeið fyrir fullorðna á eigin vegum og í Skýinu - skapandi skóla. Hún hóf að læra sellóleik 6 ára gömul en færði sig svo yfir í klassískan söng við 16 ára aldur, en stoppaði stutt við þar enda átti tónlistarsköpun hug hennar allan. Hildur er með BA-gráðu í japönsku frá Háskóla Íslands.

Sóley Stefánsdóttir er tónskáld og lagahöfundur úr Hafnarfirði. Hún útskrifaðist af tónsmíðabraut Listaháskóla Íslands árið 2010 og hefur síðan þá gefið út fjölmargar plötur og verk sem hlotið hafa bæði verðlaun og viðurkenningar. Hún varð þess heiðurs aðnjótandi að vera tilnefnd til Norrænu Tónlistarverðlaunanna árið 2022 og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sama ár fyrir plötu sína Mother Melancholia. Síðustu tólf ár hefur Sóley ferðast nánast viðstöðulaust um heiminn til að flytja tónlist sína en kennir einnig tónsmíðar/lagasmíðar við Listaháskóla Íslands og Menntaskólann í tónlist.

Jóhannes Ágúst Sigurjónsson útskrifaðist árið 2019 með BA-gráðu í tónlist úr Linnéuniversitet í Svíþjóð með sérhæfingu í lagaskrifum og pródúseringu. Hann starfar nú sem Head of Audio hjá tónlistarappinu Overtune auk þess að vinna sem pródúser, lagahöfundur og kennari. Hann hefur haldið fjölmörg námskeið í pródúseringu og lagasmíðum, m.a. hjá Reykjavíkurborg, Akureyrarbæ, Tjarnarskóla, ýmsum félagsmiðstöðvum og Skýinu - skapandi skóla.
Jóhannes hefur mikla reynslu af hljóðupptökum og pródúseringu og þekkingu og reynslu af öllum helstu forritum, búnaði og tækni í pródúseringu og upptökum. Auk þess er hann með skírteini sem Certified Pro á Logic Pro frá Apple.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Lagasmíðar og textagerð

Verð
199900

<span class="fm-plan">Lagasm&iacute;&eth;ar og textager&eth; er n&aacute;mskei&eth; fyrir alla sem eru &aacute;hugasamir um a&eth; b&uacute;a til t&oacute;nlist &ndash; hvort sem &thorn;eir hafa einhvern grunn &iacute; t&oacute;nlist e&eth;a ekki. &Aacute; &Iacute;slandi er gr&iacute;&eth;arlega sterk t&oacute;nlistarmenning og &iacute; dag geta &iacute; rauninni allir b&uacute;i&eth; til t&oacute;nlist. Fyrir suma eru lagasm&iacute;&eth;ar skapandi &aacute;hugam&aacute;l en fyrir a&eth;ra eru &thorn;&aelig;r lei&eth; til tj&aacute;ningar. Me&eth; grunnskilningi &aacute; lagasm&iacute;&eth;um, &thorn;j&aacute;lfun &iacute; textager&eth; og inns&yacute;n &iacute; helstu forrit sem h&aelig;gt er a&eth; n&yacute;ta til a&eth; taka upp og b&uacute;a til t&oacute;nlist geta lagasm&iacute;&eth;ar &thorn;&oacute; or&eth;i&eth; markvissari.</span>