)
Áhættustýring er nauðsynlegur hluti af stjórnun fyrirtækja. Markmiðið með námskeiðinu er að efla áhættuvitund og þekkingu á helstu áhættuþáttum í rekstri. Meðal annars verður farið yfir greiningu, mat og stýringu áhættu og hönnun sviðsmynda.
Markviss áhættustýring er mikilvægur þáttur í að tryggja árangur í rekstri fyrirtækja. Farið verður yfir uppsprettur áhættu, svo sem markaðsáhættu, útlánaáhættu og rekstraráhættu. Skoðað verður hvernig áhætta raungerist og hver birtingarmynd hennar er. Hvernig hægt er að draga úr áhættu með áhættudreifingu og áhættuvörnum. Hönnun sviðsmynda verður svo rakin en sviðsmyndagreining er öflugt tæki til að auka skilning á áhrifum óvæntra atburða. Niðurstöður slíkrar greiningar má nota til að efla áhættuvarnir.
Á námskeiðinu er fjallað um:
• Grunnatriði áhættustýringar.
• Helstu uppsprettur áhættu
• Greiningu, mat og forgangsröðun áhættu.
• Áhættudreifingu og áhættuvarnir.
• Sviðsmyndagerð.
Ávinningur þinn:
• Aukin meðvitund um áhættu í rekstri.
• Aukin hæfni til að greina áhættu og veikleika í rekstri.
• Aukin þekking til að dreifa áhættu og beita áhættuvörnum.
• Færni til að meta áhrif af óvæntum atburðum með sviðsmyndagerð.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað stjórnendum, greinendum og hagfræðingum sem koma að ákvörðunum um rekstur og fjármál fyrirtækja. Enn fremur nýtist það þeim sem vilja auka skilning sinn á áhættustýringu, áhættuvörnum og sviðsmyndagerð.
Kennsla:
Eggert Þ. Þórarinsson er aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands. Hann er vélaverkfræðingur frá HÍ, hefur meistaragráðu í fjármálum frá University of Cambridge og er löggiltur verðbréfamiðlari.
Aðrar upplýsingar:
Fyrirvari
Ef óviðráðanlegar aðstæður, s.s. sóttvarnarreglur, koma í veg fyrir að hefðbundin kennsla geti farið fram í húsnæði Endurmenntunar á auglýstum námskeiðstíma verður brugðist við með því að:
A – færa námskeiðið og kynna skráðum þátttakendum nýjar dagsetningar með eins góðum fyrirvara og unnt er,
eða
B – kenna námskeiðið sem fjarnámskeið í gegnum ZOOM á áður auglýstum tíma.
Komi til ofangreindra breytinga fá skráðir þátttakendur allar nauðsynlegar upplýsingar sendar í tölvupósti og geta þeir þá tekið ákvörðun um skráningu sína í ljósi breyttra forsenda.
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
Mat þátttakenda
Umsagnir
Var í heildina mjög ánægð með námskeiðið.
Kennarinn var til fyrirmyndar og þekkti efnið mjög vel og gat komið með góð dæmi.