Senn líður að jólum og margir farnir að huga að jólagjöfum ársins. Á heimasíðunni okkar eru sífellt að bætast inn spennandi námskeið á vormisseri sem eru tilvalin gjöf fyrir fróðleiksfúsa.
Gjafabréf Endurmenntunar er góð gjöf sem opnar dyr að spennandi heimi fræðslu og fróðleiks og er þar að auki vistvænn kostur sem skilur eftir sig dýrmæta þekkingu. Í boði er að velja ákveðið námskeið eða upphæð að eigin vali. Gjafabéfið rennur ekki út og því er nægur tími fyrir handhafa að finna rétta námskeiðið.
Hér að neðan höfum við tekið saman hugmyndir að skemmtilegum námskeiðum sem eru líkleg til að vekja lukku hjá ástvinum þessi jólin.
Pantaðu þitt gjafabréf HÉR.
Sagnalandið - frá Reykholti í Breiðholt
Garðfuglar - fóðrun og aðbúnaður
Byrjaðu í golfi – fyrir byrjendur og lengra komna
Klerkar, keisarar og klækibrögð - Nútímasaga Íran - FJARNÁMSKEIÐ
Jólabókaflóðið með Druslubókum og doðröntum
Núvitundarnámskeið: Velkomin í núið – frá streitu til sáttar
Aukum eigin lífsgæði og hamingju með - HYGGE
Umbrot á flekaskilum á Reykjanesskaga - FJARNÁMSKEIÐ
Að njóta klassískrar tónlistar
Ítölsk hönnun - hugmynd, hlutur og orðræða - FJARNÁMSKEIÐ
Framúrskarandi vinkona í Þjóðleikhúsinu - Hrífandi saga um stormasama vináttu
Að rita ævisögur og endurminningar
Færeyjar - menning, land og saga
Litatúban og ljósmyndin: straumar og stefnur í nútíma myndlist
Jón Múli í 100 ár
Hlaðvarp - nýtt tæki í fjölmiðlun og markaðssetningu
Austurvígstöðvarnar 1945 - Berlín og endalok þriðja ríkisins
Að verða betri en ég er – að ná hámarksárangri í lífi og starfi
Dulmögnuð bókmenntasaga Vestur-Íslendinga
Húmor og gleði í samskiptum ... dauðans alvara
Aðkoman og útisvæðið - hressum upp á aðkomu hússins og pallinn/svalirnar
Öll fjarnámskeið á vormisseri HÉR
Fleiri námskeið HÉR