Endurmenntun HÍ er staðsett í hjarta Reykjavíkur og tengist því helstu lífæðum borgarinnar eins og flugvelli, BSÍ, háskólasvæðinu sem og allri þeirri þjónustu sem miðborgin hefur upp á að bjóða.
Við erum staðsett að Dunhaga 7 í hlýlegu húsnæði með fjórum rúmgóðum 40 manna kennslustofum og glæsilegum 90 manna kennslusal. Hægt er að sameina tvær stofur sem rúma þá um 80 manns. Kennslustofurnar eru allar vel búnar tæknibúnaði sem þarf til funda, ráðstefnu, kennslu og fjarfunda. Í húsnæðinu er gott aðgengi fyrir fatlaða.