Námskeið fyrir sjóðfélaga Starfsþróunarsjóðs Félags háskólakennara
Starfsþróunarsjóður Félags háskólakennara og Endurmenntun HÍ hafa endurnýjað samning sinn þar sem sjóðfélögum býðst að sækja valin námskeið hjá Endurmenntun HÍ og greiða aðeins 10% námskeiðsgjalds við skráningu.
Hverjum einstaklingi gefst færi á að sækja þrjú námskeið á þessum kjörum. Námskeiðin sem um er að ræða eru sérstaklega valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi.

Afsláttarkóðinn er SFHPROH26 og gildir aðeins á þau námskeið sem birt eru hér fyrir neðan. Ef afsláttarkóðinn er notaður á fleiri en þrjú námskeið verður námskeiðsgjald innheimt með greiðsluseðli fyrir hvert námskeið umfram fyrstu þrjú.
Öðrum en sjóðfélögum Starfsþróunarsjóðsfélags háskólakennara er með öllu óheimilt að nota afsláttarkóðann. Ef afsláttarkóðinn er notaður af einstaklingi sem ekki hefur aðild verður námskeiðsgjald innheimt með greiðsluseðli á viðkomandi einstakling.

1. Nýr notandi þarf að setja inn netfang, smella á „Halda áfram“ og búa sér svo til lykilorð. Notandi sem þegar er til í kerfinu smellir á „Fara í innskráningu“.

2. Athugið að við skráningu þarf þátttakandi að setja sína eigin kennitölu í reitinn Kennitala greiðanda. Afsláttarkóðinn veitir 90% afslátt af námskeiðsgjaldi og er settur inn í síðasta skrefi skráningarferlisins (Greiðsla og staðfesting).

3. Setja á afsláttarkóðann í reitinn Afsláttarkóði.

1. Nýr notandi þarf að setja inn netfang, smella á „Halda áfram“ og búa sér svo til lykilorð. Notandi sem þegar er til í kerfinu smellir á „Fara í innskráningu“.


