Fara í meginmál

Um okkur

End­ur­mennt­un Há­skóla Ís­lands

End­ur­mennt­un Há­skóla Ís­lands er lif­andi vett­vang­ur sem teng­ir Há­skóla Ís­lands, at­vinnu­líf og sam­fé­lag og skap­ar fjöl­breytt um­hverfi náms fyrir öll þau sem vilja efla hæfni og þekk­ingu í lífi og starfi.

Mynd af húsnæði skólans
Um Endurmenntun

Hlut­verk End­ur­mennt­un­ar HÍ er að stuðla að betra sam­fé­lagi með því að efla þekk­ingu og hæfni, tengja fólk og skapa tæki­færi.

Fagráð

Fagráð Endurmenntunar HÍ eru sex talsins. Þau eru ráðgefandi bakland við þróun námsframboðs sem og álitsgjafi varðandi íslenska og erlenda kennara og fyrirlesara. Í þeim situr öflugur hópur fagfólks úr opinbera og einkageiranum sem á það sameiginlegt að hafa áhuga á þróun og nýjungum á viðkomandi fagsviði.

Grænu skref­in

Birkitré við norðurhlið húss Endurmenntunar HÍ

Endurmenntun Háskóla Íslands tekur þátt í grænum skrefum fyrir ríkisstofnanir sem miðar að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna.

Í ljósi þess vill Endurmenntun HÍ biðja þátttakendur að hafa eftirfarandi atriði í huga:

  • Við hvetjum viðskiptavini okkar til að velja umhverfisvænan ferðamáta þegar komið er til okkar á Dunhaga 7.
  • Bílastæði næst aðalinngangi eru sérmerkt fyrir hreyfihamlaða.
  • Hjólagrindur eru fyrir framan aðalinngang.
  • Strætó stansar við flestar byggingar Háskóla Íslands. Kynntu þér leiðarkerfi og tímatöflu strætó.
  • Allt rusl sem til fellur í húsnæði Endurmenntunar er flokkað og sett í viðeigandi merktar fötur.
  • Þátttakendur eru hvattir til að mæta með eigin bolla/brúsa fyrir kaffi og vatn.

Starf­sem­is­skýrsla 2025

Hér má skoða starfsemisskýrslu Endurmenntunar Háskóla Íslands fyrir árið 2025.

Endurmenntun HÍ nýtur engra opinberra fjárframlaga og er rekstur Endurmenntunar HÍ eingöngu byggður á eigin tekjum s.s. náms- og námskeiðsgjöldum.

Side of the building of Endurmenntun, green grass and plants.
Front door of building
Pavement, trees, houses
Some people

Starfs­fólk

Hjá Endurmenntun HÍ starfa um 18 starfsmenn í 15 stöðugildum á hverjum tíma fyrir sig, sem búa yfir sérhæfðri reynslu og menntun á sviði fræðslumála.

Sjá meira
Stjórn Endurmenntunar HÍ 2026

Stjórn

Stjórn Endurmenntunar HÍ er skipuð fulltrúum Háskóla Íslands sem eru valdir af háskólaráði til þriggja ára.

Sjá meira

Merki End­ur­mennt­un­ar HÍ

Hér má nálgast merki Endurmenntunar HÍ á ensku og íslensku, í hvítu og bláu (.png/.svg).

Sam­starfs­að­il­ar

Endurmenntun Háskóla Íslands á í formlegu samstarfi við fjölmörg félög, fyrirtæki og stofnanir. Formlegum samstarfssamningum hefur fjölgað jafnt og þétt að undanförnu og eru á fjölbreyttum sviðum samfélagsins. Samstarfið byggist á gagnkvæmum hagsmunum samstarfsaðila, gæðum, sveigjanleika og góðum samskiptum.

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.