192 útskrifuð af sex námsbrautum

192 voru brautskráð frá Endurmenntun HÍ í Háskólabíói síðastliðinn föstudag. Að þessu sinni var um að ræða námsbrautirnar jákvæða sálfræði, verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, leiðsögunám, fjölskyldumeðferð, ökukennaranám og löggildingu fasteigna- og skipasala.
Félagar í Lúðrasveitinni Svani spiluðu létt íslensk dægurlög í anddyrinu og tóku þannig vel á móti fjölda góðra gesta sem var viðstaddur athöfnina.
Halla Jónsdóttir endurmenntunarstjóri bauð öll velkomin í sinni opnunarræðu. Þá ávarpaði Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor Háskóla Íslands, samkomuna og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flutti hátíðarræðu.
Skúli Arnlaugsson, útskriftarnemi í jákvæðri sálfræði, flutti síðan fyrir hönd allra útskriftarnema einstaklega fallega útskriftarræðu. Þar sagði hann meðal annars: „Í rannsóknum jákvæðrar sálfræði eru styrkleikar fólks meðal annars skoðaðir, styrkleikar eins og lærdómsást, sem ég er viss um að við öll sem hér sitjum höfum í ríkum mæli. Lærdómsástin birtist í brennandi áhuga einstaklinga á að læra nýja hluti og þróa sig áfram, vaxa og tileinka sér nýja þekkingu. Þessi eiginleiki gerir þeim kleift að aðlagast breyttum aðstæðum, auka sjálfsþekkingu og bæta lífsgæði sín. Lærdómsástin er því að mínu mati mikilvægur kostur í fari fólks og mig langar til að hvetja ykkur öll til að halda áfram að vera forvitin og læra nýja hluti.“
Tónlistarhjónin Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson, fluttu ljúf lög á milli atriða og skópu afar heimilislega stemningu.
Við hjá Endurmenntun HÍ erum afar stolt af útskriftarnemum okkar og óskum þeim enn og aftur innilega til hamingju!
Hér eru nokkrar myndir frá athöfninni.

Lúðrasveitin Svanur vekur ávallt lukku.



Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Skúli Arnlaugsson.

Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson.

Ástvinir og gestir voru á ýmsum aldri.

Afhending eins af tæpum 200 skírteinum.

Útskriftarnemar úr ökukennararnámi til almennra réttinda.

Útskriftarnemar úr verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun.

Útskriftarnemar úr leiðsögunámi.

Útskriftarnemar úr jákvæðri sálfræði.

Útskriftarnemar úr fjölskyldumeðferð.

Útskriftarnemar úr löggildingarnámi fasteigna- og skipasala.
