Fara í meginmál

Braut­skrán­ing kandí­data 12. júní

Brautskráning kandídata 12. júní
Fréttir15. júní 2020

Brautskráning kandídata frá ENDURMENNTUN HÍ fór fram við hátíðlega athöfn í Háskólabíó föstudaginn 12. júní 2020. Alls voru 179 kandídatar brautskráðir af sjö námsbrautum, Fjölskyldumeðferð - diplómanám á meistarastigi, Hugræn atferlisfræði í lífi og starfi, Jákvæð sálfræði - diplómanám á meistarastigi, Nám til löggildingar fasteigna- og skipasala, PMTO meðferðarmenntun, Sálgæsla - Diplómanám á meistarastigi og Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun.

Krefjandi aðstæður á vorönn

Kristín Jónsdóttir Njarðvík, endurmenntunarstjóri, flutti ávarp við upphaf athafnarinnar og þakkaði nemendum og kennurum sérstaklega fyrir útsjónarsemi og sveigjanleika við þær krefjandi aðstæður sem mynduðust á vorönninni þegar samkomubann var sett á og byggingum Háskólans lokað. Þurftu þá allir að aðlaga sig í snatri að óhefðbundnu kennslufyrirkomulagi í gegnum fjarskiptaforritið Zoom og tókst önnin betur upp en á horfðist í fyrstu. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hélt svo stutt erindi og sendi góða kveðju til aðstandenda sem fylgdust með útskriftinni í gegnum streymi heima í stofu.

Þarf hugrekki til að fara í nám

Hátíðarræðu flutti Helga Þórðardóttir, kennslustjóri Fjölskyldumeðferðar - diplómanám á meistarastigi. Kom hún inn á ýmsa þætti og þar á meðal að sú ákvörðun að fara í nám krefjist hugrekkis af viðkomandi, enda þarf oft að færa fórnir á meðan nám er stundað, hvort sem það er tími með fjölskyldunni eða minni athygli í vinnunni.

Fyrir hönd nemenda flutti Arnar Þór Jónsson, kandídat úr Sálgæslu - Diplómanám á meistarastigi, ávarp. Hann minnti okkur á að menntun eigi sér langa og margslungna sögu og hefur meðal annars verið notuð sem vopn yfirvalds gegn þegnum sínum. En í grunninn er tilgangur menntunar að auðga andann, víkka hugann og veita okkur frelsi til gagnrýnnar hugsunnar. Hlutverk menntunar er því mikilvægt sem aldrei fyrr í upplýsingaflæði nútímans þar sem oft er ekki allt sem sýnist.

Þakkir

Við óskum útskriftarnemendum okkar innilega til hamingju með áfangann og þökkum fyrir samleiðina undanfarin misseri.

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.