Fara í meginmál

Braut­skrán­ing nem­enda úr lengra námi 5. júní 2026

Mynd af stóra sviðinu í Háskólabíó, Hildur Elín Vignir stendur í pontu og heldur ræðu, við hlið hennar er táknmálstúlkur
Fréttir8. júní 2026

Brautskráning nemenda úr lengra námi frá Endurmenntun Háskóla Íslands fór fram við hátíðlega athöfn í Háskólabíó föstudaginn 5. júní 2026. Alls voru 154 nemendur brautskráðir af sex námsbrautum, Leiðsögunám - áfangastaðurinn Ísland, Ökukennaranám til almennra réttinda, Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, Jákvæð sálfræði, Sálgæsla og Nám til löggildingar fasteigna- og skipasala.

Félagar í Lúðrasveitinni Svani tóku vel á móti gestum og spiluðu létt íslensk dægurlög í anddyrinu.

Hildur Elín Vignir forstöðumaður Endurmenntunar HÍ bauð öll hjartanlega velkomin í opnunarræðu. Þá ávarpaði Dr. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, samkomuna.

Hildur Elín Vignir stendur við poltu uppi á sviði í Háskólabíó og heldur ræðu

Hildur Elín Vignir, forstöðumaður Endurmenntunar HÍ.

Dr. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands við poltu uppi á sviði í Háskólabíó heldur ræðu.

Dr. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands.

Tónlistarmennirnir Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson, fluttu falleg og ljúf lög á milli atriða og skópu afar hátíðlega stemningu.

Sigríður og Guðmundur að flytja lög fyrir árhorfendur í stóra salnum í Háskólabíó

Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson

Sveinn Waage, útskriftarnemi í Leiðsögunáminu, flutti ræðu fyrir hönd nemenda. Þar sagði hann meðal annars: „Þetta leiðsögunám er annað og meira en flestir halda. Þetta er ótrúlega umfangsmikið, fjölbreytt og já krefjandi.. eins og allt gott nám. Þetta er líka nám sem hættir ekki við útskrift, það mun taka einhver ár að ná yfir allt ítarefnið og lifum við í landi sem tekur stöðugum breytingum og Ísland í heild sinni er jú okkar námskrá.“

Sveinn Waage heldur ræðu uppi á sviði í Háskólabíó

Sveinn Waage, útskriftarnemi.

Sigyn Blöndal útskrifarnemi í Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, flutti einnig ræðu fyrir hönd nemenda og sagði meðal annars: „Eitt er víst að hér inni, akkúrat núna, er fólk sem lætur sig annað fólk varða – til dæmis að kenna börnunum okkar að keyra, ég held reyndar að þetta sé sérstök tegund af masókisma, er jákvæða sálfræðin kannski partur af því námi? Hér er fólk sem er til staðar þegar erfiðustu stundirnar banka upp á, fólk sem styður okkur í stærstu fjárhagslegu ákvörðunum okkar og hjálpar okkur að finna heimili – nú eða bát. Fólk sem tekur á móti ferðamönnunum sem langar að borga fullt af peningum fyrir að liggja í mjúkum mosa, eða drekka úr læk nú eða uppáhald allra að fylgja miðaldra göngukvennahópum á Kerlingafjöll eða yfir Fimmvörðuháls. Og svo fólkið mitt hér inni sem gerir áætlanir á áætlanir ofan, excel skjöl til að ná utan um öll excel skjölin og sannfærir fólk um að þeirra leið sé sú allra besta til árangurs. Geggjaður hópur!“

Sigyn Blöndal heldur ræðu uppi á sviði í Háskólabíó

Sigyn Blöndal, útskrifarnemi í Verkefnatjórnun og leiðtogaþjálfun

Hér eru nokkrar myndir frá athöfninni.

Gestur í salnum í Háskólabíó, heldur á stórum og fallegum blómvendi
Úr stóra salnum í Háskólabíó, áhorfendur í sal
Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson flytja lag á sviðinu í Háskólabíó
Stóra sviðið í Háskólabíó
Lúðrasveitin Svanur í anddyri Háskólabíó

Lúðrasveitin Svanur tók vel á móti útskriftarnemum og gestum þeirra.

Útskriftarnemar úr leiðsögunámi

Útskriftarnemar úr Leiðsögunámi.

Útskriftarnemar úr leiðsögunámi.

Útskriftarnemar úr Leiðsögunámi.

Útskriftarnemar úr ökukennaranámi til almennra réttinda

Útskriftarnemar úr Ökukennaranámi til almennra réttinda.

Útskriftarnemar úr ökukennaranámi til almennra réttinda

Útskriftarnemar úr Ökukennaranámi til almennra réttinda.

Útskriftarnemar úr verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun

Útskriftarnemar úr Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun.

Útskriftarnemar úr verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun

Útskriftarnemar úr Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun.

Útskriftarnemar úr jákvæðri sálfræði

Útskriftarnemar úr Jákvæðri sálfræði.

Útskriftarnemar úr jákvæðri sálfræði

Útskriftarnemar úr Jákvæðri sálfræði.

Útskriftarnemar úr sálgæslu

Útskriftarnemar úr Sálgæslu.

Útskriftarnemar úr sálgæslu

Útskriftarnemar úr Sálgæslu.

Útskriftarnemar úr löggildingarnámi fasteigna- og skipasala

Útskriftarnemar úr Löggildingarnámi fasteigna- og skipasala.

Útskriftarnemar úr löggildingarnámi fasteigna- og skipasala

Útskriftarnemar úr Löggildingarnámi fasteigna- og skipasala.

Útskriftarnemar eftir afhendingu skírteina fagna í salnum í Háskólabíó

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.