Fara í meginmál

Braut­skrán­ing úr PMTO - með­ferð­ar­námi, 2026

Hópmynd af nemendum í PTMO náminu við brautskráningu þann 2. október 2026
Fréttir6. október 2026

Brautskráning nemenda úr PMTO - meðferðarnámi frá Endurmenntun Háskóla Íslands fór fram föstudaginn 2. október við hátíðlega athöfn. Alls voru 16 nemendur brautaskráðir.

Hildur Elín Vignir, forstöðumaður Endurmenntunar HÍ, flutti ávarp við upphaf athafnarinnar og sagði meðal annars “Það sem einkennir þetta nám er að það byggist ekki aðeins á þekkingu heldur einnig á raunverulegri vinnu með fjölskyldum. Þið hafið æft ykkur, fengið handleiðslu, tekið við endurgjöf og þróað faglega færni sem mun nýtast ykkur og þeim sem til ykkar leita um ókomin ár. Í dag ljúkið þið námi sem veitir ykkur réttindi til að stunda PMTO-einstaklingsmeðferð. Um leið hefst nýr kafli. Ég vona að þið berið með ykkur þá fagmennsku, forvitni og ábyrgð sem einkenna góða sérfræðinga og haldið áfram að þróast í starfi.

Þið sem útskrifist hér í dag hafið tekist á við námið samhliða annasömu lífi, vinnu, fjölskyldu og öðrum skuldbindingum. Sum ykkar sneru aftur til náms eftir langt hlé og þið komuð með fjölbreyttan bakgrunn. Það krefst kjarks og elju að stíga þetta skref og raska hversdeginum til að læra eitthvað nýtt.

PMTO er gagnreynd aðferð sem hefur það markmið að styrkja foreldra og bæta líðan og samskipti innan fjölskyldna. Með útskriftinni í dag bætist við hópur sérfræðinga sem getur haft raunveruleg áhrif á líf barna og foreldra. Það er mikilvægt framlag til samfélagsins”.

Þá flutti Margrét Sigmarsdóttir, kennari námsins ávarp og að lokum hélt Yrsa Hauksdóttir Frýdal ávarp fyrir hönd nemenda.

Eftir afhendingu skírteina fögnuðu útskriftarnemar ásamt sínum nánustu.

Starfsfólk Endurmenntunar Háskóla Íslands óskar útskriftarnemendum hjartanlega til fyrir hamingju með árangurinn.

útskriftarmynd af hópnum PMTO 2026
Mynd úr athöfn
Mynd úr athöfn
Mynd úr athöfn
Mynd úr athöfn
Mynd úr athöfn

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.