Léttur og skemmtilegur fyrirlestur fyrir vinnustaði sem virkjar sköpunar- og lífskraftinn

„Hvernig verðum við gömul?“ er léttur og skemmtilegur fyrirlestur með húmorísku ívafi sem hentar vel vinnustaðateymum til hópeflis. Fyrirlesturinn flytja Hrefna Lind Lárusdóttir og Ragnar Ísleifur Bragason og á fyrirlesturinn að hvetja fólk á öllum aldri til að rannsaka líf sitt og virkja sköpunar- og lífskraftinn. Kenndar verða æfingar og þátttakendur verða fengnir í lið með fyrirlesurum á meðan á fyrirlestri stendur. Markmið fyrirlestursins er að öðlast bæði líkamlegan og andlegan skilning á kostum þess að verða gamall. Í raun og veru æfa þátttakendur sig í að vera gamlir og öðlast með því nýtt sjónarhorn.
Fyrirlesturinn er um 45 mínútur að lengd og er tilvalinn smærri og stærri teymum til þess að styrkja hópinn.
Sviðslistakonan Hrefna Lind Lárusdóttir hefur starfað með listahópum á borð við The Post Performance Blues Band á Íslandi og Macao listahópnum á Ítalíu. Hún er einnig listrænn stjórnandi Saga residency á Eyrarbakka. Hrefna er menntaður jógakennari, stundakennari við Listaháskóla Íslands og Ritlistardeild Háskóla Íslands. Hrefna útskrifaðist með meistaragráðu frá Listaháskóla Íslands í samtímasviðslistum. Einnig lauk hún meistaragráðu frá Naropa University í Theater Comtemporary Performance.
Sviðslistamaðurinn Ragnar Ísleifur Bragason hefur undanfarin ár tekið þátt í bæði dans- og leiksýningum með leikhópunum 16 elskendur og Kriðpleir. Ragnar hefur kennt við Listaháskóla Íslands og LungAskólann á Seyðisfirði. Hann útskrifaðist frá sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands.
Saman gerðu Hrefna og Ragnar sýninguna „Gamall“, þar sem Ragnar bregður sér í hlutverk gamals manns.
