Mannauðsdagurinn 2022

Líf og fjör í Hörpunni
Mannauðsdagurinn 2022
Fréttir10. október 2022

Mannauðsdagurinn var haldinn 7. október í Hörpu og að þessu sinni átti viðburðinn tíu ára afmæli. Starfsfólk Endurmenntunar stóð vaktina eins og fyrri ár og nýtti tækifærið til að kynna starfsemina, námsframboðið og hlusta á fróðlega fyrirlestra. Uppselt var á viðburðinn og nóg um að vera enda fjölmörg fyrirtæki mætt til að kynna sig og efla tengslanetið. Mannauðsdagurinn er kjörinn vettvangur til að ná til stjórnenda í fyrirtækjum og áhuginn á Endurmenntun var mikill en kynntar voru fjölbreyttar leiðir sem stjórnendur geta nýtt sér til að miðla fræðslu til síns starfsfólks. Dagskráin yfir daginn var þéttskipulögð og það var gaman að hlusta á allt það helsta sem fólk er að fást við í mannauðsmálum nútímans. Í lokin steig svo Ari Eldjárn á svið og skemmti áhorfendum áður en boðið var upp á léttar veitingar til að skála fyrir vel heppnuðum degi. Mannauðsdagurinn er alltaf lærdómsríkur og Endurmenntun kemur til með að nýta sér þennan lærdóm í námsþróun komandi missera.

Mannauðsdagurinn 2022

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.