Nemendur hittast á ný

Nemendur hittast á ný
Fréttir10. júní 2020

Það var glatt á hjalla hjá nemendahópum í Jákvæðri sálfræði og Fjölskyldumeðferð þegar við hittum á þá í kynningum lokaverkefna á dögunum. Síðan samkomubannið var sett á þann 12. mars höfðu hóparnir stundað nám sitt í gegnum fjarnám en eftir að afléttingar á banninu hófust 4. maí máttu nemendur loksins koma saman aftur í skólastofum ENDURMENNTUNAR og urðu þá miklir fagnaðarfundir. Þrátt fyrir óvenjulegar aðstæður á vormisserinu mátti ekki greina að samkomubannið hefði komið niður á náminu og metnaður nemenda leyndi sér ekki. Verkefnin voru fjölbreytt og áhugaverð en í Fjölskyldumeðferðinni var meðal annars fjallað um uppeldisaðstæður og fjölskyldumynstur Hómers Simpson sem flestir landsmenn kannast við. Vakti verkefnið mikla lukku og spruttu fram umræður um að setja á fót námskeið út frá verkefninu enda Simpson fjölskyldan mörgum ástkær og gaman að fræðast meira um hana. Mikil spenna var í loftinu hjá nemendum enda útskrift á næsta leyti en þann 12. júní næstkomandi verða 179 nemendur úr 7 námsbrautum útskrifaðir frá ENDURMENNTUN HÍ. Hóparnir litu björtum til sumarsins og hlökkuðu til að fagna áfanganum saman eftir krefjandi mánuði vorsins.

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.