Nýr vefur Endurmenntunar Háskóla Íslands

Nýr og betrumbættur vefur Endurmenntunar Háskóla Íslands hefur nú verið settur í loftið, en verkefnið var í höndum stafrænu stofunnar Júní. Vefurinn var endurhannaður frá grunni með það að meginmarkmiði að gera hann aðgengilegri, öruggari og hraðari, sem og að draga enn betur fram fjölbreytt námsframboð Endurmenntunar HÍ.

Á nýja vefnum er lögð sérstök áhersla á öfluga leitarvél, gott snjallsímaviðmót og greiðari aðgang að námskeiðum og lengra námi. Þá hefur tenging við námsumsjónarkerfið Eduframe einnig verið bætt til muna og vandaðir eiginleikar þess nú nýttir enn betur, til dæmis með tilkomu biðlista og áhugaskráningar. Ýmsar framfarir hafa einnig verið gerðar á allri framsetningu efnis, svo sem upplýsinga um kennara námskeiða, tímasetningar og dagskrá.

Í þróunarteymi Júní voru Júlía Runólfsdóttir, hönnuður, Jón Lorange, forritari og Fanney Vilhjálmsdóttir, verkefnisstjóri. Yfirhönnuður var Guðmundur Bjarni Sigurðsson.

Starfsfólk Endurmenntunar HÍ þakkar Júní fyrir frábæra vinnu og einkar þægilegt og fagmannlegt samstarf. Sömuleiðis vill Endurmenntun þakka Sigurjóni Ólafssyni hjá Fúnksjón vefráðgjöf fyrir góða undirbúningsvinnu og gerð kröfulýsingar í upphafi vegferðarinnar.
