Ármann Jakobsson og Ólafs saga Tryggvasonar

Ármann Jakobsson og Ólafs saga Tryggvasonar
Fréttir2. febrúar 2022

Flateyjarbók hefur löngum verið talið merkasta íslenska miðaldahandritið og það kom til Íslands í apríl 1971, ásamt Konungsbók eddukvæða, við hátíðlega athöfn eins og margir muna eftir. 
En hversu vel þekkjum við Flateyjarbók? Þungamiðja handritsins eru sögur fjögurra norskra konunga en í þeim eru fjölmargir þættir sem m.a. fjalla um íslensk málefni. Fyrst af þessum sögum er Ólafs saga Tryggvasonar hin mesta, samin á 14. öld. Ólafur var sá sem kristnaði Ísland og því verður kristnitaka Íslands mjög til umfjöllunar á sérstöku námskeiði um Flateyjarbók, sem Ármann Jakobsson mun sjá um og hann sagði nánar frá Flateyjarbók og þessu námskeiði í Mannlega þættinum á Rás 2 í vikunni.

Hlustaðu á þáttinn hér

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.