Samstarfssamningur við félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

Námskeið fyrir félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Mynd af logó-i Endurmenntunar HÍ og af lógó-i félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Fréttir18. desember 2025

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Endurmenntun HÍ hafa gert samning þar sem aðildarfólki býðst að sækja starfstengd námskeið hjá Endurmenntun HÍ með 85% afslætti. Námskeiðin sem um er að ræða eru sérstaklega valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi.

Þátttaka á þessum námskeiðum kemur ekki til frádráttar á styrkupphæð einstaklinga. Félagsfólk Fíh getur sótt um til Starfsþróunarseturs Fíh (StFíh) endurgreiðslu fyrir þeim 15% námskeiðsgjaldsins sem það greiðir sjálft vegna námskeiða hjá Endurmenntun HÍ.

Upplýsingar um afsláttarkóða sem nota skal við skráningu sækir þú inn á „Mínar síður“ á vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Allar nánari upplýsingar fyrir félagsfólk FÍH má finna á meðfylgjandi slóð: Námskeið fyrir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.