Treyjudagurinn - Við erum öll í sama liði!

Starfsfólk Endurmenntunar HÍ mætti í uppáhaldstreyjunni sinni í dag, föstudaginn 4. september og sýndi þannig stuðning við börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra.
Endurmenntun HÍ styrkir styrktarfélagið Börn með krabbamein, en það stendur að Treyjudeginum hér á landi. Félagið var stofnað árið 1991 og styður krabbameinsveik börn og fjölskyldur þeirra bæði fjárhagslega og félagslega auk þess að gæta hagsmuna þeirra. Treyjudagurinn var fyrst haldinn í Englandi árið 2013 og er nú haldinn í fyrsta sinn á Íslandi árið 2026.
Börn með krabbamein, styrktarfélag stendur að Treyjudeginum hér á landi. Félagið var stofnað árið 1991 og styður krabbameinsveik börn og fjölskyldur þeirra meðal annars félagslega og fjárhagslega auk þess að gæta hagsmuna þeirra.
