Verðandi fasteignasalar spenntir fyrir haustinu

Verðandi fasteignasalar spenntir fyrir haustinu
Fréttir25. ágúst 2023

Haustið er skemmtilegur tími hjá Endurmenntun HÍ og líf og fjör á göngunum. Nýir, áhugasamir, sólbrúnir og spenntir nemendur eru meðal þeirra sem núna stíga sín fyrstu skref í námi sem þau hafa fjáfest í og hlakka til að takast á við skemmtileg og krefjandi verkefni. Við plötuðum nokkur þeirra út í kaffihléi til að smella af þeim mynd, en um var að ræða hluta þeirra sem eru í námi til löggildingar fasteigna- og skipasala.

Greina mátti ósköp skiljanlega feimni í hópnum, enda voru þau að hittast í fyrsta sinn og eiga eftir að kynnast betur. Hver veit nema meðal þeirra verði til falleg vinátta eða viðskiptasamband. Annað eins hefur allnokkrum sinnum gerst meðal nemenda okkar, atvinnumarkaðnum og samfélaginu til góðs.

Sjá nánar um námið hér.

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.