Við tökum vel á móti þér á Dunhaganum

Í janúar opnaði Endurmenntun dyrnar aftur að Dunhaganum fyrir þátttakendum og nemendum námsbrauta en húsið hafði verið lokað um nokkurt skeið vegna fjöldatakmarkana. Undanfarið hefur verið vor í lofti og það er gaman að fylgjast með lífinu færast aftur yfir húsnæðið. Eins og ávallt er farið í einu og öllu eftir sóttvarnarreglum landlæknis en grímuskylda er í öllum opnum rýmum og passað er upp á fjarlægðarmörk með sérstökum merkingum í kennslustofunum. Sprittbrúsar eru víðsvegar í byggingunni og gestir eru hvattir til að huga vel að persónulegum sóttvörnum. Grímur eru í boði fyrir þá sem koma ekki með sínar eigin og gildir þá ein gríma á mann. Starfsfólk í þjónustu er síðan ávallt reiðubúið til að aðstoða ef spurningar vakna og sjá til að sameiginlegir snertifletir séu sótthreinsaðir reglulega.
Um daginn var nemendahópur í Sálgæslu staddur í húsinu og náðum við skemmtilegum myndbrotum af hópnum í tíma hjá Vigfúsi Bjarna Albertssyni, forstöðumanni Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, þar sem hluti nemenda var í stofu og hluti fylgdist með í gegnum Zoom eins og vaninn er orðinn á tímum Covid. Við bjóðum fólk velkomið á Dunhagann á meðan aðstæður halda áfram að vera með besta móti. Þetta eru vissulega skringilegir tímar en með sameiginlegu átaki eru allir vegir okkur færir og bjartari tímar leynast handan við hornið.
