
Fyrirtækjalausnir
Metnaður | Árangur | Fagmennska
Fjölbreytt framboð
Endurmenntun Háskóla Íslands hefur þjónað atvinnulífinu í áratugi og er í stöðugu samtali við fyrirtæki, stofnanir og fagfélög um þarfir fyrir fræðslu.

Þetta endurspeglast í fjölbreyttu framboði Endurmenntunar HÍ og hægt er að panta stök námskeið þaðan fyrir tiltekna hópa. Einnig er boðið upp á sérsniðnar fræðslulausnir sem geta m.a. innifalið:
- Greiningu markmiða og þarfa.
- Hönnun fræðslu í takt við þarfir.
- Undirbúning og framkvæmd fræðslu.
- Yfirsýn yfir þátttöku starfsfólks í gegnum Mínar síður.
- Mat á árangri – eftirfylgd.
Ávinningur
Stjórnendur nútímans eru meðvitaðir um að þekking og hæfni starfsfólks er grundvöllur árangurs. En fræðsla er fjárfesting og það skiptir máli að tímanum sé vel varið. Mikilvægt er að vinna faglega að undirbúningi og framkvæmd fræðslu svo að hún skili því virði sem henni er ætlað. Þegar fyrir liggur að fræða þurfi hóp starfsmanna um tiltekið efni er ástæða til að íhuga sérsniðnar lausnir en ávinningur þess felst meðal annars í því að þær:
Hitta beint í mark
- Svara sértækum þörfum um fræðslu hvað varðar bæði innihald og kennsluhætti.
- Taka mið af stefnu og starfsemi hvers fyrirtækis (markmiðum, menningu, aðstæðum, tíma og fleira).
Sveigja sig að aðstæðum
- Fræðslan fer fram á þeim tíma sem hentar best.
- Góð aðstaða er fyrir hendi í húsnæði Endurmenntunar HÍ en einnig er sjálfsagt að koma með fræðslu inn í fyrirtæki og stofnanir ef það hentar betur.
- Netnámskeið veita starfsfólki kost á að velja stað og stund sem hentar þeim best.
Efla liðsheild
- Skapar vettvang fyrir fólk til að vera samferða í fræðslu, taka umræður og hafa gaman.
Tryggja fagmennsku
- Hjá Endurmenntun HÍ starfa sérfræðingar í fræðslu með þekkingu á kennslu, áralanga reynslu af þarfagreiningu, undirbúningi og öllum þeim smátriðum í framkvæmd fræðslu sem skipta sköpum þegar á hólminn er komið.
- Þarfagreining er ávallt unnin í góðu samstarfi við tengilið þess fyrirtækis eða stofnunar sem um ræðir.
- Endurmenntun HÍ starfar með kennurum sem eru hæfustu sérfræðingar á hverju sviði, bæði úr háskólasamfélaginu og atvinnulífinu.
Gera árangur mælanlegan
- Skýr markmið með fræðslu og faglegur undirbúningur eru grundvöllur þess að hægt sé að meta árangur hennar.
- Endurmenntun HÍ leggur áherslu á að fylgja því eftir hvort markmiðum með fræðslu hafi verið náð og hefur til þess viðeigandi verkfæri.
Hvaða leið er best að fara?
Hjá Endurmenntun HÍ er lögð áhersla á að velja ávallt það kennsluform sem þjónar þörfum viðskiptavinarins og skilar bestum árangri. Þar eru ýmsar leiðir færar svo sem:
- Staðnámskeið - námskeið haldin í húsnæði Endurmenntunar HÍ eða í húsnæði að vali viðskiptavinar. Oft eru þessi námskeið á vinnustofuformi þar sem lærdómurinn byggir á virkri þátttöku, samskiptum og verkefnavinnu.
- Fjarnámskeið - bein útsending þar sem þátttakendum gefst færi á að taka þátt í umræðum og eiga samskipti við kennarann á rauntíma.
- Netnámskeið - námskeið sem eru aðgengileg á stafrænu formi þar sem og þegar viðskiptavini hentar.
- Blandaðir kennsluhættir - kennsla fer fram með ýmsum hætti eftir því sem hentar efninu. T.d. geta fyrirlestrar verið á stafrænu formi eða sem fjarnámskeið og þátttakendur eru svo boðaðir á staðnámskeið þegar vinna þarf saman og taka umræðuna. Þannig næst fram bæði virði og góð nýting á tíma.

Hafðu samband
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um sérpöntuð námskeið og/eða sérsniðnar fræðslulausnir, hafið þá endilega samband.
Sendu okkur línu