Jákvæð sálfræði

Námið er haldið í samstarfi við Menntavísindasvið HÍ og samsvarar 60 ECTS einingum.
Í náminu er hugmyndafræði og nálgun jákvæðrar sálfræði og velsældarvísinda kynnt þannig að nemendur geti nýtt sér hana bæði í einkalífi og starfi. Námið veitir víðtæka þekkingu á jákvæðri sálfræði sem fræðigrein og kynnir fyrir nemendum þau tækifæri sem felast í því að skoða styrkleika umfram veikleika og byggja á því sem vel er gert í stað þess sem fer úrskeiðis.
Viðtöl við fyrrum nemendur
- „Jákvæð sálfræði mikilvæg fyrir samfélagið í heild“ (6. maí, 2025)
- „Langar að auðvelda öðrum að bæta líf sitt“ (4. apríl, 2025)
- „Sá ókunnugi er bara vinur sem þú hefur ekki hitt ennþá“ (10. maí, 2024)
- „Framúrskarandi kennarar og geggjað te“ (9. apríl, 2024)
- „Ætlar að opna leikskóla fyrir fullorðna“ (19. maí, 2023)
Get ég fengið fyrra nám metið?
Hægt er að sækja um að fá fyrra nám metið inn í lengra nám hjá Endurmenntun HÍ. Slíkar beiðnir eru teknar fyrir eftir að búið er að samþykkja viðkomandi einstakling inn í námið. Fylgja skal reglum Endurmenntunar um mat á fyrra námi.
Upplýsingar
Nám á framhaldsstigi háskóla
1. september 2027
Tilkynningar
Stefnt er að því að opna fyrir umsóknir í byrjun mars fyrir nám haustið 2027.
