Leiðsögunám - áfangastaðurinn Ísland - H27

Námið er örnam í samstarfi við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ og samsvarar 30 ECTS einingum á grunnstigi háskóla.
Námstíminn nær yfir tvö misseri, kennsla hefst í september og náminu lýkur með brautskráningu í júní 2027.
Námið hefur verið vottað í samræmi við Evrópustaðalinn ÍST EN 15565:2008.
Leiðsögunám Endurmenntunar Háskóla Íslands veitir nemendum yfirgripsmikla og faglega menntun sem undirbýr þá til að starfa sem leiðsögumenn á Íslandi. Í náminu er fjallað um fjölbreytt viðfangsefni sem eru undirstaða faglegrar og vandaðrar leiðsagnar, þar á meðal sögu og menningu Íslands, náttúrufræði og náttúruvernd, veðurfræði, öryggismál, viðbrögð við vá, ferðaþjónustu, samskiptafærni og leiðsagnartækni. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér hæfni til að miðla þekkingu á faglegan, skýran og ábyrgan hátt til ferðamanna.
Get ég fengið fyrra nám metið?
Hægt er að sækja um að fá fyrra nám metið inn í lengra nám hjá Endurmenntun HÍ. Slíkar beiðnir eru teknar fyrir eftir að búið er að samþykkja viðkomandi einstakling inn í námið. Fylgja skal reglum Endurmenntunar um mat á fyrra námi.
Upplýsingar
Nám á grunnstigi háskóla
1. september 2027
Tilkynningar
Stefnt er að því að opna fyrir umsóknir í byrjun mars fyrir nám haustið 2027.
