Nám til löggildingar fasteigna- og skipasala (H26)

Í samstarfi við lagadeild Háskóla Íslands og byggir á lögum um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015.
Námið samsvarar 90 ECTS einingum.
Réttindanám til löggildingar fasteigna- og skipasala er fjögurra missera námsbraut sem undirbýr þá sem ætla sér að sækja um löggildingu til fasteigna- og skipasölu og aðra þá sem vilja öðlast meiri þekkingu á þessu sviði.
„„Upp í huga mér varðandi námið Löggilding fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala koma orð líkt og hagnýtt, krefjandi, lærdómsríkt, uppbyggilegt og skemmtilegt. Nám þetta gefur víðari sýn á viðskiptin, bætir þekkinguna og eykur vellíðan í starfi. Nám þetta hefur veitt mér þá lífsfyllingu sem ég leitaðist eftir. Takk kærlega fyrir mig.“ Jórunn Skúladóttir, sölufulltrúi Miklaborg"
Nánari upplýsingar um námið má finna í námsvísi.
Get ég fengið fyrra nám metið?
Hægt er að sækja um að fá fyrra nám metið inn í lengra nám hjá Endurmenntun HÍ. Slíkar beiðnir eru teknar fyrir eftir að búið er að samþykkja viðkomandi einstakling inn í námið. Fylgja skal reglum Endurmenntunar um mat á fyrra námi.
Upplýsingar
Nám á grunnstigi háskóla
18. ágúst 2026 – 16. júní 2028
Tilkynningar
Umsóknarfrestur er liðinn. Lokað hefur verið fyrir umsóknir.
