Ökukennaranám til almennra réttinda

Námið samsvarar 30 ECTS einingum á grunnstigi háskóla. Námstíminn nær yfir tvö misseri, Kennsla hefst í ágúst og náminu lýkur með brautskráningu í júní 2027.
Ökukennaranám er starfsmenntun sem miðar að því að búa nemendur undir að starfa sem ökukennarar en getur einnig nýst vel við margvísleg önnur störf á sviði umferðarmála.
Viðtöl við fyrrum nemendur
- „Umferðarsálfræðin mikilvægur hluti námsins“ (7. apríl, 2025)
- „Fjölbreytt og gott nám sem hefur nýst vel í starfi“ (21. apríl, 2024)
Get ég fengið fyrra nám metið?
Hægt er að sækja um að fá fyrra nám metið inn í lengra nám hjá Endurmenntun HÍ. Slíkar beiðnir eru teknar fyrir eftir að búið er að samþykkja viðkomandi einstakling inn í námið. Fylgja skal reglum Endurmenntunar um mat á fyrra námi.
Upplýsingar
Nám á grunnstigi háskóla
1. september 2027
Tilkynningar
Stefnt er að því að opna fyrir umsóknir í byrjun mars fyrir nám haustið 2027.
