Fara í meginmál

PMTO með­ferð­ar­nám

Nám í samstarfi við í samstarfi við Miðstöð PMTO - foreldrafærni á Íslandi.

Námið samsvarar 60 ECTS einingum á framhaldsstigi háskóla.

Námstíminn nær yfir tæplega tvö ár og Kennsla hefst í september 2027.

Námið veitir viðkomandi réttindi til að stunda PMTO einstaklingsmeðferð og hópmeðferð.

Parent Management Training–Oregon–aðferð (PMTO) er meðferðarúrræði fyrir foreldra til að meðhöndla hegðunarerfiðleika barna. Það er þróað af Dr. Gerald Patterson og samstarfsfélögum hans á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Learning Center (OSLC) í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum.

Úrræðið er byggt á víðtækum rannsóknum á mismunandi hópum og tilheyrir hópi gagnreyndra meðferðarúrræða (EBPs; Evidence-based Programs). Það felur í sér að úrræðinu fylgir ítarleg handbók, nákvæm lýsing á hópi notenda og sýnt hefur verið fram á árangur í slembivalsrannsóknum með mælingum til eftirfylgdar, þar á meðal rannsóknum sem aðrir framkvæma en þeir sem þróuðu meðferðina.

PMTO-nálgun hentar bæði til meðferðar og í forvarnaskyni, í einstaklings- eða hópmeðferð. PMTO er að einhverju leyti fyrirmynd ýmissa annarra úrræða á sviði foreldrafærniþjálfunar. Í dag hafa höfundar gefið aðferðinni heitið “GenerationPMTO” og það því oft notað í birtum greinum. Evrópulönd, sem innleiða aðferðina, hafa hins vegar haldið í PMTO sökum hefðar.

Skráðu þig á póstlista og fáðu til­kynn­ingu þegar opnað er fyrir um­sókn­ir.

Upp­lýs­ing­ar

Nám án eininga

1. september 2027

Til­kynn­ing­ar

Stefnt er að því að opna fyrir umsóknir í byrjun mars fyrir nám haustið 2027.

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.