Skipulagsmál
Fjallað verður um áhrif skipulags á umhverfi og samfélag og aðkomu íbúa og annarra aðila að skipulagsgerðinni.

Skipulagsmál er námskeið hugsað fyrir almenning, sveitarstjórnarfólk og opinbera starfsmenn.
Skipulagsmál eru spennandi og mikilvæg en um leið krefjandi og jafnvel flókin. Í skipulagi er sett stefna um fyrirkomulag byggðar og mótun umhverfis og þar er landi ráðstafað fyrir mismunandi nýtingu. Teknar eru ákvarðanir og ákvæði sett um hönnun hins byggða umhverfis. Sveitarfélögum ber skylda til að taka faglegar og gagnsæjar skipulagsákvarðanir með aðkomu íbúa og hagaðila.
Á námskeiðinu verður farið yfir tilgang og markmið skipulagsgerðar, helstu hugtök í skipulagi, mismunandi gerðir skipulags og skipulagsferlið. Fjallað verður um áhrif skipulags á umhverfi og samfélag og aðkomu íbúa og annarra aðila að skipulagsgerðinni. Jafnframt er fjallað um ýmis tæki og tól sem notuð eru við skipulagsgerð.
Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu þátttakenda á skipulagsmálum. Námskeiðinu er ætlað að veita ákveðna yfirsýn um skipulagsmál, auka skipulagslæsi og færni til þátttöku í skipulagsgerð. Tekin verða dæmi til útskýringar og stuðnings á viðfangsefninu.
Námskeiðið er ætlað fyrir sveitarstjórnarfólk og aðra kjörna fulltrúa í nefndum sveitarfélaga, t.d. skipulagsnefndir, byggingarnefndir, hafnarstjórnir, umhverfisnefndir og atvinnunefndir.
Einnig fyrir starfsfólk sveitarfélaga og aðra opinbera starfsmenn sem tengjast skipulagsmálum. Gagnlegt fyrir aðila sem tengjast framkvæmdum sem kalla á skipulagsvinnu. Hentar einnig íbúum sem láta sig skipulagsmál varða.
„Það skein í gegn hversu leiðbeinendur höfðu góða og ítarlega þekkingu á efni námskeiðsins."
15. október 2026
3 klst – 1 skipti
Fer fram í rauntíma á ZOOM
Dagskrá
15. október kl. 9–12
Kennarar
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
