StaðnámByrjaðu í golfi - fyrir byrjendur og lengra komin
31. ágúst – 3. september 2026
6 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
38.900 kr.
Á þessu fræðslunámskeiði verður leitast við að svara algengum spurningum umönnunaraðila um svefn barna á leikskólaaldri.

Nægur svefn er meginundirstaða líkamlegrar og andlegrar heilsu og þroska barna. Flestir umönnunaraðilar upplifa á einhverjum tímapunkti áskoranir í tengslum við svefntíma, daglúrinn og/eða nætursvefninn. Slíkar áskoranir geta undið hratt upp á sig og verið streituvekjandi fyrir börn og umönnunaraðila. Ef þú vilt læra hvernig er hægt að fyrirbyggja að slíkt gerist, kynnast mismunandi leiðum til að takast á við erfiðleika þegar þeir koma upp og/eða fræðast um svefn barna þá gæti þetta verið námskeið fyrir þig.
Á þessu fræðslunámskeiði verður leitast við að svara algengum spurningum umönnunaraðila um svefn barna á leikskólaaldri. Af hverju er svefn mikilvægur? Hversu mikinn svefn þurfa börn að jafnaði? Hvað telst til svefnerfiðleika? Hvaða umhverfisþættir geta ýtt undir og viðhaldið svefnerfiðleikum? Hvaða hlutverk spilar daglúrinn og hvenær á að taka hann út? Hvað eru góðar svefnvenjur? Hvað er til ráða ef barn fæst ekki í rúmið, er lengi að sofna, þarf aðstoð við það eða getur ekki sofið í sínu rúmi? Þetta eru spurningar sem allir umönnunaraðilar barna á leikskólaaldri ættu að geta nýtt sér svör við, sama hvort þeir eiga börn á leikskólaaldri sem eru að glíma við svefnerfiðleika eða vilja fyrirbyggja að eðlilegar svefntruflanir endi sem langvarandi svefnerfiðleikar.
Námskeiðið er fyrir þau sem koma að umönnun barna á leikskólaaldri, til dæmis foreldra, starfsfólk leikskóla, ömmur og afa.
12. nóvember 2026
1,5 klst. – 1 skipti
Fer fram í rauntíma á ZOOM
12. nóvember kl. 9:30 – 10:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám31. ágúst – 3. september 2026
6 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
38.900 kr.
Staðnám14. september 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
21.900 kr.
Staðnám23. september – 28. október 2026
12 klst. – 6 skipti
Snemmskráningarverð
62.900 kr.
Staðnám28. september 2026
7 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
46.900 kr.
Staðnám28. september 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
22.900 kr.
Fjarnám1. október 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
21.900 kr.
Staðnám5. október – 12. október 2026
6 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
38.900 kr.
Staðnám12. október 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
21.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.