Draum­ar - speg­ill sál­ar­inn­ar

5 stjörnur
Á nám­skeið­inu er fjall­að um eðli og gildi drauma í til­finn­inga­líf­inu og hvernig hægt er að túlka drauma og nýta sér þá til and­legr­ar upp­bygg­ing­ar.

Langar þig að vita hvað draumarnir þínir þýða? Langar þig að muna betur draumana þína? Langar þig að læra betur á tilfinningar þínar? Á námskeiðinu færðu tækifæri til að kynnast betur hugmyndum um eðli og gildi drauma í tilfinningalífinu og hvernig hægt er að túlka drauma og nýta sér þá til andlegrar uppbyggingar.

Draumar eru sammannleg fyrirbæri og hafa heillað manneskjur á öllum tímum. Reynslan hefur sýnt að draumatúlkun getur hjálpað fólki við að takast á við ýmis viðfangsefni í sínu lífi, hvort heldur sem þau eru tengd tilfinningum, alls kyns aðstæðum eða jafnvel flóknum úrlausnarefnum og vandamálum. Margir álíta að ef fólk gefur draumum sínum gaum, þá geti það eflt sköpunargáfu sína, aukið innsæi sitt og komið út sem sterkari og heilli manneskjur. Þar að auki eru draumar og draumaráðningar vinsælt umræðuefni á meðal fólks og námskeiðið bætir í sarpinn ýmsum fróðleik sem skemmtilegt er að hafa á takteinum.

Á námskeiðinu verður áhersla lögð á kenningar C.G. Jungs um djúpsálarfræði og drauma, auk þess sem fjallað verður almennt um svefn og drauma. Einnig byggir fyrirlesari á sinni eigin reynslu af því að nota draumavinnu í sálgæslu. Þar að auki gefst færi á ákveðinni draumavinnu, þ.e. að fólk leggi fram drauma og fái túlkun á þeim skv. kenningum djúpsálarfræðinnar.

„Mæli 100% með nám­skeið­inu sem var alveg frá­bært."

Staðnám

11. nóvember 2026

2,5 klst – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

11. nóvember kl. 19:30–22

Kenn­ari
Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
19.900 kr.

Snemmskráning til og með 3. nóvember. Almennt verð er 21.900 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Draumar - spegill sálarinnar

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.