Fara í meginmál

Hindí fyrir byrj­end­ur I

Nem­end­ur kynn­ast Devang­ari rit­máli og fram­burði á hindí og mark­mið­ið er að læra ein­föld sam­skipti á hindí.

Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ

Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja ná tökum á helstu undirstöðuatriðum hindí. Engrar forkunnáttu er krafist þar sem námskeiðið er fyrir byrjendur.

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á seinni hluta haustmisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:10.

Í námskeiðinu kynnast nemendur Devangari ritmáli og framburði á hindí og markmiðið er að læra einföld samskipti á hindí. Námskeiðið er tjáskiptamiðað og stuðst verður við fjölbreytt námsefni m.a. hljóð-og myndefni.

Viðfangsefni námskeiðsins:

  • Hindístafrófin
  • Sérhljóð og samhljóð
  • Ósjálfstæð sérhljóð
  • Tveggja, þriggja og fjögurra stafa orð
  • Kyn og tala orða

Hæfniviðmið:

Í lok námskeiðsins geta nemendur:

  • þekkt hindístafrófin, skilið og borið fram hljóð í hindí bæði sér- og samhljóða.
  • þekkt, lesið og skilið tveggja, þriggja og fjögurra stafa orð.
  • lesið og skilið setningar sem samanstanda af tveggja, þriggja eða fjögurra stafa orðum.
  • greint bæði kyn og tölu orða.

Námskeiðið er kennt á ensku.

Sjá kennsluskrá hér.

Staðnám

13. október – 19. nóvember 2026

18 klst. – 2 skipti

Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar

Dag­skrá

13. október kl. 16:40 – 18:10

19. nóvember kl. 16:40 – 18:10

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

5 laus pláss

Verð

100.000 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Hindí fyrir byrjendur I

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.