Fara í meginmál

Franska fyrir byrj­end­ur II

Fram­halds­nám­skeið, hald­ið í sam­starfi við Mála- og menn­ing­ar­deild við Hug­vís­inda­svið HÍ, fyrir þau sem vilja ná tökum á helstu und­ir­stöðu­at­rið­um í frönsku.

Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ.

Þetta námskeið er fyrir alla þá sem vilja ná tökum á helstu undirstöðuatriðum í frönsku máli á skömmum tíma og hafa lokið námskeiðinu FRA017G Franska fyrir byrjendur I eða hafa sambærilega forkunnáttu (í samráði við kennara). Lögð er jöfn áhersla á lestur, hlustun, ritun og talfærni. Farið verður yfir grunnhugtök í franskri málfræði. Athugið að námskeiðið gildir ekki til eininga í BA-námi í frönsku.

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á seinni hluta haustmisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:10.

Hæfniviðmið:

Í lok námskeiðs hafa nemendur:

  • Náð tökum á einföldum orðaforða daglegs lífs og geti tjáð sig um sjálfa sig, fjölskyldu sína, sitt nánasta umhverfi eins og t.d. híbýli.
  • Öðlast skilning á grunnatriðum franskrar málfræði.
  • Þekkja og geta borið fram helstu málhljóð í frönsku máli.

Nemendur geta:

  • Lesið einfalda texta á frönsku.
  • Skilið einfalt hlustunarefni á frönsku.
  • Ritað einfaldan texta á frönsku svo sem lýsingar á hýbýlum og persónum.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við Endurmenntun HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.

Sjá kennsluskrá hér.

Staðnám

13. október – 19. nóvember 2026

18 klst. – 2 skipti

Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar

Dag­skrá

13. október kl. 16:40 – 18:10

19. nóvember kl. 16:40 – 18:10

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

5 laus pláss

Verð

100.000 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Franska fyrir byrjendur II

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.