FjarnámSkipulagsmál
15. október 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
32.900 kr.
Vinnur þú með mannvirki? Lærðu að framkvæma vistferilsgreiningu frá A til Ö og meta kolefnisspor eftir nýrri byggingarreglugerð.

Vinnur þú með mannvirki? Námskeið fyrir þá sem vilja læra að framkvæma vistferilsgreiningu frá A til Ö og meta kolefnisspor eftir nýrri byggingarreglugerð.
Þriðjung losunar gróðurhúsalofttegunda í heiminum má rekja til byggingageirans og gera sífellt fleiri lönd kröfur um takmarkanir á losun. Breytingar á íslenskri byggingarreglugerð taka gildi 1. september 2025 þar sem gerð er krafa um mat á kolefnisspori bygginga fyrir byggingarleyfi.
Námskeiðið er kennt af reyndum sérfræðingum með því markmiði að bæta þekkingu og færni þátttakenda til þess að framkvæma vistferilsgreiningu sem uppfyllir nýjar kröfur.
Námskeiðið er verklegt að mestum hluta. Á námskeiðinu læra þátttakendur að framkvæma einfalda vistferilsgreiningu (LCA, Life Cycle Assessment, einnig kölluð lífsferilsgreining) og meta kolefnisspor byggingar til þess að mæta kröfum nýrrar byggingarreglugerðar. Megináhersla er lögð á að þátttakendur öðlist færni í að setja upp og vinna LCA fyrir byggingar. Farið verður yfir aðferðafræðina og þátttakendum veitt innsýn með sýnidæmum í vægi ólíkra byggingarefna í kolefnisspori og hvernig megi draga úr því. Farið verður yfir hvaða gögn þarf til að framkvæma vistferilsgreiningu og hvaða hugbúnaður er helst notaður við slíka framkvæmd.
Á námskeiðinu munu þátttakendur fá tækifæri til að stilla upp vistferilsgreiningu fyrir einfalda byggingu undir handleiðslu reyndra sérfræðinga.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að byggingu mannvirkja, þar á meðal arkitektum, verktökum, iðnaðarmönnum, ráðgjöfum, verkfræðingum, verkkaupum og öðrum húsbyggjendum.
Engar forkröfur eru gerðar fyrir námskeiðið.
8. október 2026
4 klst. – 1 skipti
Fer fram í rauntíma á ZOOM
8. október kl. 8:30 – 12:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Fjarnám15. október 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
32.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.