StaðnámMicrosoft Power BI
3. nóvember – 4. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
75.800 kr.
Hvernig hafa loftslagsbreytingar áhrif á þinn rekstur? Lærðu að greina áhættuna og bregðast við með markvissum hætti.

Loftslagsbreytingar eru ekki lengur aðeins umhverfismál – þær eru fjárhagslegt áhættumál. Þessi áhætta getur birst í truflunum á rekstri, hærri kostnaði, breytingum á eftirspurn, nýju regluverki og aukinni áhættu fyrir fjárfesta.
Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýta og heildstæða innsýn inn í loftslagsáhættu, hvaða áhrif hún hefur á rekstur, hvernig er hægt að leggja raunhæft mat á hana og stýra henni með markvissum hætti. Farið er yfir lykilhugtök, aðferðir og verkfæri sem nýtast stjórnendum við stefnumótun, áhættustýringu og ákvarðanatöku.
Farið er yfir loftslagsbreytingar, bæði sögulega þróun og framtíðarspár, og þau áhrif sem vænta má að þær hafi. Hvernig loftslagsbreytingar, og viðbrögð við þeim, geta skapað fjárhagslega áhættu fyrir einstök fyrirtæki og kynntar aðferðir við að leggja mat á þá áhættu fyrir einstaka undirþætti loftslagsáhættu.
Farið yfir mat raunlægrar áhættu þar sem skoðaðir eru einstaka áhættuþættir, útsetning og næmni, ásamt því að farið er yfir raunlæga áhættu á Íslandi.
Undirþættir umbreytingaráhættu (breytingar á regluverki, tæknibreytingar og viðhorf á markaði) skoðaðir ásamt því aðferðir við mat losunar, helsta áhættuvísir umbreytingaráhættu, eru skoðaðar sérstaklega.Farið yfir einstaka undirþætti stýringar loftslagsáhættu, stefnu, stjórnskipulag, áhættustýringu og innra eftirlit. Undirþættir áhættustýringar skoðaði frekar, bæði greining, mæling, eftirlit, stýring og upplýsingagjöf.
Námskeiðið er fyrir öll þau sem hafa áhuga á að kynna sér hugsanlega fjárhagslega áhættu sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér. Sérstaklega áhrif á rekstur fyrirtækja og áhrif á fjárfestingar.
Ekki eru gerðar neinar forkröfur.
19. nóvember 2026
3,5 klst. – 1 skipti
Fer fram í rauntíma á ZOOM
19. nóvember kl. 13:00 – 16:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám3. nóvember – 4. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
75.800 kr.
Staðnám5. nóvember – 6. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
80.200 kr.
Staðnám5. nóvember – 19. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
52.300 kr.
Fjarnám5. nóvember 2026
3 klst. – 1 skipti
36.200 kr.
Staðnám13. nóvember 2026
4 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
35.900 kr.
Staðnám18. nóvember 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
32.900 kr.
Staðnám19. nóvember – 20. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
Fullbókað – skrá á biðlista
68.900 kr.
Staðnám26. nóvember – 27. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
68.900 kr.
3 laus pláss
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.