Fara í meginmál

Grunn­nám­skeið til leyf­is eigna­skipta­yf­ir­lýs­inga og merkjalýs­inga

Námið hefst á grunn­nám­skeiði sem er skyldu­nám­skeið og und­an­fari tveggja fram­halds­nám­skeiða.

Í samstarfi við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun er haldið nám fyrir þau sem stefna á að sækja um leyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar eða merkjalýsingar.

Námið hefst á grunnnámskeiðinu sem er skyldunámskeið og undanfari hinna tveggja námskeiðanna. Grunnnámskeiðinu lýkur með prófi og til að námskeiðið teljist lokið þarf að lágmarki 7,0 í prófseinkunn.

Að loknu grunnnámskeiði verður opnað fyrir umsóknir í framhaldsnámskeiðin, inntökuskilyrði í þau er að hafa lokið grunnnámskeiðinu. Stefnt er að því að Námskeið og próf til leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar hefjist í janúar 2027 og að Námskeið og próf til leyfis til að gera merkjalýsingar hefjist í mars 2027.

Námskeiðin byggja á reglugerðum nr. 160/2024 um merki fasteigna og nr. 233/1996 um leyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar.

Grunnnámskeið til leyfis merkjalýsinga og eignaskiptayfirlýsingar skiptist í þrjá hluta:

A: Inngangur að lögum og reglugerðum um skráningu og nýtingu fasteigna

Fjallað er um kjarnahugtök varðandi merkjalýsingar og eignaskipti ásamt þeim lögum og reglugerðum sem við kemur skráningu og nýtingu fasteigna. Fjallað er almennt um lög um skráningu, merki og mat fasteigna, skipulagslög og skipulagsreglugerð, lög um mannvirki, byggingarreglugerð, þinglýsingalög, jarðalög, landskiptalög, lög um eignarétt og afnotarétt fasteigna, réttarheimildir og fl.

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • Þekkja og skilja hugtakið fasteign.
  • Þekkja vel helstu atriði er varða skráningu og nýtingu fasteigna. Þar með talin eru lög um skráningu, merki og mat fasteigna, lög um fjöleignarhús, skipulagslög, jarðalög og landskiptalög.
  • Þekkja markmið og efni reglugerða nr.160/2024 um merki fasteigna og nr.910/2000 um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum og geta beitt þeim við réttar aðstæður.
  • Þekkja og geta beitt skipulags-, þinglýsingar- og jarðarlögum við réttar aðstæður.
  • Hafa þekkingu á lögum um eignarétt.
  • Þekkja og geta unnið með hugtökin eignarréttur, réttarheimildir, þinglýsing, eignaskiptalýsingar o.s.frv.
  • Vita hver lagaleg skilgreining fasteignar er og hver er munurinn á fasteign og mannvirki.
  • Þekkja til merkja fasteigna og hvaða aðferðir hafa verið notaðar í gegnum tíðina til að lýsa þeim (orðföst merki, teiknuð/hönnuð eða mæld).

B: Sáttamiðlun

Fjallað verður um sáttamiðlun við lausn ágreiningsmála. Einnig er fjallað um persónuvernd og trúnaðarskyldu.Tilgangurinn með námskeiðinu er að fræða nemendur um verkfæri sáttamiðlunar sem nýst geta í vinnu og samskiptum við gerð merkjalýsinga og eignaskiptasamninga.

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • Þekkja til verkfæra sáttamiðlunar og kunna að beita þeim í ágreiningsmálum.
  • Geti gert greinarmun á sáttamiðlun, dómsmeðferðum og öðrum úrræðum við lausn ágreinings.
  • Þekkja til persónuverndar og trúnaðarskyldu.

C: Aðferðafræði, heimildaöflun og gildandi verkferlar við skráningu fasteigna

Fjallað verður um skráningu fasteigna, miðlun fasteignaupplýsinga, verklag við skráningu, hlutverk og ábyrgð einstakra skráningaraðila, nauðsynlega gagnaöflun við úrvinnslu mála o.s.frv.

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • Þekkja hvaða upplýsingar eru í fasteignaskrá og skiptingu hennar í stofnhluta, mannvirkjahluta og þinglýsingarhluta.
  • Þekkja mismunandi leiðir til að fletta upp í fasteignaskrá og afla sér skjala og heimilda sem skráning byggir á.
  • Þekkja hvar upplýsingar liggja um eldri skráningar.
  • Þekkja tilgang, markmið landeignaskrár og lagalegt gildi upplýsinga í landeignaskrár.
  • Þekkja mannvirkjaskrá og upplýsingar sem þar eru skráðar.
  • Hafa grunnþekkingu á að heimildum ber ekki alltaf saman og því mikilvægt að afla allra aðgengilegra upplýsinga um tilteknar fasteignir.
  • Þekkja almenna skráningarferla landeigna, fasteigna og mannvirkja og samspil þeirra við þinglýsingar.
  • Þekkja hlutverk og ábyrgð merkjalýsenda, eignaskipta, hönnuða mannvirkja, skipulags- og byggingarfulltrúa, HMS og þinglýsingarstjóra sýslumanna.
  • Þekkja umsóknarferli fyrir eigendur vegna breytinga á skráningu fasteigna.
  • Þekkja algengustu aðgerðir við breytingu skráninga fasteigna; Uppmæling merkja, breyting á skráningu landstærðar, uppskipting, samruni ofl.
  • Þekkja hvaða skráningarkerfi eru notuð vegna fasteignaskrár og hlutverk mismunandi aðila í þeim.
Fjarnám

20. október – 30. nóvember 2026

30 klst. – 10 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dag­skrá

20. október kl. 11:00 – 11:05

27. október kl. 15:00 – 15:45

31. október kl. 9:00 – 12:00

5. nóvember kl. 15:00 – 17:00

10. nóvember kl. 13:00 – 15:00

12. nóvember kl. 13:00 – 15:00

17. nóvember kl. 15:00 – 17:00

24. nóvember kl. 15:00 – 15:45

24. nóvember kl. 16:00 – 16:45

30. nóvember kl. 9:00 – 13:00

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

185.000 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Grunnnámskeið til leyfis eignaskiptayfirlýsinga og merkjalýsinga

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.