StaðnámSharePoint - frá grunni til ofurnotanda
2. mars – 16. mars 2027
9 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
73.500 kr.

Í samstarfi við Húsnæðis-, mannvirkja, og skipulagsstofnun er haldið nám fyrir þau sem stefna á að sækja um leyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar.
Námskeiðið byggir á reglugerð nr. 233/1996 um leyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar.
Umsóknarfrestur í Námskeið og próf til leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar er til og með 14. janúar nk.
Námskeið og próf til leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar skiptist í þrjá hluta:A: FjöleignarhúsalögB: Gerð skráningartöflu og útreikningur hlutfallstalna í fjöleignarhúsumC: Eignaskiptayfirlýsingar
A: Fjöleignarhúsalög
Markmið A-hluta námskeiðsins er að veita nemendum góða yfirsýn yfir og þekkingu á helstu reglum laga um fjöleignarhús nr. 26/1994 og reglugerðar og reglugerðar 910/2000 um eignaskiptayfirlýsingar o.fl. í fjöleignarhúsum.
Að námskeiði loknu skal nemandi:
B: Gerð skráningartöflu og útreikningur hlutfallstalna í fjöleignarhúsum
B-hluti námskeiðsins fjallar um hvernig skráningartöflur eru unnar við skráningu og skiptingu mannvirkja í séreignar- og sameignarhluta. Lögð er áhersla á aðferðir við útreikning, uppsetningu gagna og tryggingu samræmis milli teikninga, rýmis- og flatarmálaskráa. Nemendur læra að nota viðeigandi verkfæri og aðferðir til að tryggja réttar og gagnsæjar skráningar í samræmi við staðla, fylgiskjal reglugerðar um eignaskiptayfirlýsingar og leiðbeiningar/skráningarreglur HMS og byggingafulltrúa.
Að námskeiði loknu skal nemandi:
C: Eignaskiptayfirlýsingar
Eignaskiptayfirlýsingar byggja á reglum laga um fjöleignarhús nr. 26/1994, reglugerð 910/2000 um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum, fylgiskjali reglugerðar um eignaskiptayfirlýsingar, lög um skráningu, merki og mat fasteigna, byggingarlöggjöf, þinglýsingum og annarri löggjöf er máli skiptir.
Markmið námskeiðs er að veita nemendum góða yfirsýn yfir og þekkingu við gerð eignaskiptayfirlýsinga, í samræmi við þau lög og reglugerðir sem kennd eru á grunnnámskeiðinu, hlutverk skráningartöflu í eignaskiptayfirlýsingum, uppsetningu eignaskiptayfirlýsinga, undirbúning, gagnaöflun og vinnubrögð.
Að námskeiði loknu skal nemandi:
26. janúar – 30. mars 2027
32 klst. – 6 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
26. janúar kl. 15:00 – 17:00
30. janúar kl. 9:00 – 11:00
5. febrúar kl. 9:00 – 11:00
15. mars kl. 9:00 – 13:00
30. mars kl. 9:00 – 13:00
30. mars kl. 14:00 – 16:00
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Verð
240.000 kr.
Staðnám2. mars – 16. mars 2027
9 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
73.500 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.