Fara í meginmál

Gæða­stjórn­un - frá áætl­un til ár­ang­urs

Hag­nýtt nám­skeið um gæða­stjórn­un sem sjálf­stætt fag; hvernig hún nýt­ist til að styrkja rekst­ur, bæta ferla og lág­marka sóun.

Námskeið í samstarfi við Staðlaráð Íslands.

Gæðastjórnun - frá áætlun til árangurs er hagnýtt námskeið um gæðastjórnun sem sjálfstætt fag, hvernig hún nýtist til að styrkja rekstur, bæta ferla og lágmarka sóun.Fjallað er um kröfur sem gerðar eru og hvaðan þær koma; íslenskar og evrópskar reglugerðir, ISO staðlar, kröfur viðskiptavina og ekki síst kröfur fyrirtækisins. Lögð er áhersla á hvernig gæðastjórnun styður við mannauðsmál, öryggis- og umhverfismál, breytingastjórnun, verkefnastjórnun og fleira. Námskeiðið byggir á raunverulegum dæmum úr atvinnulífinu, tengir gæðastjórnun við daglegan rekstur svo þátttakendur geti strax nýtt þekkingu sína á eigin vinnustað.Kennsla fer fram með fyrirlestrum á myndbandsupptökum sem þátttakendur geta horft á þegar hentar, ásamt tveimur staðarlotum þar sem lögð er áhersla á umræður og vinnu í hópum. Í hvorri staðarlotu verður gestafyrirlesari sem ræðir afmarkað efni á dýptina og setur í samhengi við raunveruleg dæmi úr rekstri.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja styrkja sig í hlutverki eða verkefnum sem tengjast gæðastjórnun og gæðastjórnunarkerfum. Hentar einnig þeim sem vilja skapa sér ný tækifæri á vinnumarkaði á sviði gæðastjórnunar.

Stað- og fjarnám

1. október – 6. nóvember 2026

32 klst. – 5 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

1. október kl. 15:00 – 16:00

15. október kl. 10:00 – 17:00

16. október kl. 8:30 – 15:30

5. nóvember kl. 10:00 – 17:00

6. nóvember kl. 8:30 – 15:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

320.000 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Gæðastjórnun - frá áætlun til árangurs

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.