Fara í meginmál

Fán­inn og þjóð­in

Hver er höf­und­ur ís­lenska þjóð­fán­ans? Af hverju varð Hvít­blá­inn ekki fyrir val­inu? Hvernig hefur merk­ing og staða fán­ans breyst frá því honum var fyrst flagg­að?

Hver er höfundur íslenska þjóðfánans? Af hverju varð Hvítbláinn ekki fyrir valinu? Hvernig vildi Danakonungur hafa fánann? Og hvernig hefur merking og staða fánans breyst frá því honum var fyrst flaggað þann 1. desember 1918?

Saga íslenska fánans hefur lítið verið skrásett, þrátt fyrir að fáninn hafi gegnt mikilvægu hlutverki í fullveldis- og lýðveldisbaráttu Íslendinga í lok 19. og byrjun 20. aldar. Þótt fáninn sé eitt þekktasta tákn þjóðarinnar eru margir af merkilegustu hlutum sögu hans lítt þekktir.

Á námskeiðinu verður fjallað um ástæður þess að Íslendingar kröfðust eigin þjóðfána, hvaða aðrir fánar komu til greina og margar skemmtilegar sögur sem tengjast mótun íslensks menningarheims. Einnig verða skjaldarmerki og önnur þjóðartákn skoðuð. Að lokinni umfjöllun um uppruna fánans og þann eldmóð sem þar bjó að baki, verður staða hans í samtímanum skoðuð og rædd. Nota Íslendingar fánann mikið? Hefur afstaða okkar til fánans breyst á tímum aukinnar samfélagslegrar umræðu, þar sem ólíkir hópar hafa í auknum mæli vísað til hans í tengslum við sín sjónarmið?

Námskeiðið fer fram í formi lifandi frásagnar þar sem stuðst er við fjölbreytt myndefni, ljósmyndir, teikningar og heimildir frá ólíkum tímabilum. Í lok hvers námskeiðskvölds gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í umræðum og bera fram spurningar.

Námskeiðið er hugsað fyrir alla áhugasama um íslenska menningarsögu og þjóðernistákn. Engar kröfur eru gerðar um þekkingu á efninu, aðeins áhuga á fánanum og menningarsögu Íslands. Efnið er sett fram til að hafa gaman af því og munu efnistök taka mið af því.

Staðnám

2. nóvember – 16. nóvember 2026

7,5 klst. – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

2. nóvember kl. 19:30 – 22:00

9. nóvember kl. 19:30 – 22:00

16. nóvember kl. 19:30 – 22:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

41.500 kr.

Snemmskráning: 25. október. Almennt verð: 45.700 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Fáninn og þjóðin

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.