StaðnámViðbrögð stjórnenda við tilkynningu um EKKO á vinnustað
29. október 2026
4 klst. – 1 skipti
45.600 kr.
Hagnýtt og skapandi námskeið fyrir þau sem vilja tileinka sér verkfæri viðburðastjórnunar og skipuleggja viðburði af meira öryggi.

Hagnýtt og skapandi námskeið fyrir þau sem vilja tileinka sér verkfæri viðburðastjórnunar og skipuleggja viðburði af meira öryggi. Þátttakendur vinna í sameiningu raunhæft verkefni þar sem viðburður er skipulagður frá A til Ö og nýtt eru nauðsynleg tól viðburðastjórnunar, svo sem áhættugreining, afmörkun umfangs, kynningarmál, áætlanagerð, verkaskipting, endurmat og skjölun. Á þennan hátt gefst tækifæri til að tileinka sér hagnýt vinnubrögð og verkfæri viðburðastjórnunar.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist sjálfstraust til að takast á við skipulagningu viðburða og öðlist grundvallarskilning á verkfærakistu viðburðastjórans í gegnum reynslu af skipulagningu viðburðar. Sérstök áhersla er lögð á samstarf í litlum teymum, samskipti og verkaskiptingu. Í lok námskeiðs endurmeta þátttakendur viðburðinn og læra aðferðir við að skjala verkefnið svo lærdómur nýtist í næstu verkefnum.
Kennslan byggir á virkri þátttöku, skapandi aðferðum og reynslu kennara af raunverulegum, umfangsmiklum viðburðum. Engin reynsla af viðburðastjórnun er nauðsynleg, en þátttakendur þurfa að vera tilbúnir til að taka virkan þátt allt námskeiðið. Námskeiðið hentar jafnt þeim sem vilja ná aukinni færni við skipulagningu persónulegra viðburða sem og viðburða innan fyrirtækja, stofnana eða félagasamtaka.
Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér fartölvu. Athugið að námskeiðið felur í sér verklega framkvæmd viðburðar á námskeiðstíma.
3. nóvember – 24. nóvember 2026
16 klst. – 4 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
3. nóvember kl. 12:30 – 16:30
10. nóvember kl. 12:30 – 16:30
17. nóvember kl. 12:30 – 16:30
24. nóvember kl. 12:30 – 16:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám29. október 2026
4 klst. – 1 skipti
45.600 kr.
Staðnám29. október 2026
3 klst. – 1 skipti
36.200 kr.
Staðnám3. nóvember – 4. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
68.900 kr.
Fjarnám4. nóvember 2026
4 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
40.900 kr.
Staðnám4. nóvember 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
33.900 kr.
Staðnám5. nóvember – 6. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
72.900 kr.
Staðnám5. nóvember – 19. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
47.500 kr.
Fjarnám5. nóvember 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
32.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.