StaðnámMicrosoft Power BI
3. nóvember – 4. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
75.800 kr.
Hvernig getur líkamleg hugsun opnað nýjar leiðir til nýsköpunar og stefnumótunar á tímum gervigreindar?

Eftir því sem fleiri verkefnum er útvistað til gervigreindar verður mikilvægara að rækta það sem einkennir mannlega hugsun; sjálfstæði, sköpunarkraft og hæfni til að móta nýja sýn út frá eigin reynslu og ólíkum sjónarhornum. En hvernig ræktum við þessa hæfni þegar tæknin hefur í auknum mæli áhrif á dómgreind okkar, hugsun og ákvarðanir í stað reynslu og skynfinningar?
Á þessu námskeiði skoðum við mannlega hugsun út frá óvenjulegu sjónarhorni: Hugsun á sér ekki aðeins stað í höfðinu heldur byggir einnig á reynslu okkar, skynfinningu og líkamsvitund. Með líkamlegri gagnrýninni hugsun er athyglinni beint að eigin reynslu, skynfinningu og líkamsvitund sem uppsprettu þekkingar samhliða rökhugsun og greiningu. Þátttakendur kynnast aðferðum líkamlegrar gagnrýninnar hugsunar og kanna hvernig má nýta þær til að nálgast flókin viðfangsefni frá nýjum sjónarhornum, efla sköpunarkraft og taka ákvarðanir í óvissu.
Unnið verður með verklegar æfingar sem þróaðar hafa verið í rannsóknarverkefninu Frelsi til merkingarsköpunar. Þátttakendur skoða hvernig eigin reynsla, skynfinning og sú vitneskja sem býr í líkamanum geta orðið uppspretta nýrra hugmynda og hvernig ólík sjónarhorn geta styrkt samtal, stefnumótun og nýsköpun innan skipulagsheilda.
Sérstök áhersla er lögð á þá leiðtogahæfni sem felst í því að hugsa sjálfstætt fremur en einsleitt, greina það sem skiptir máli í flóknum aðstæðum og skapa rými fyrir ólík sjónarhorn. Leiðtogahæfni er hér ekki bundin við starfsheiti eða formlega valdastöðu heldur birtist hvar sem fólk hefur áhrif á samtal, ákvarðanir og sameiginlegar aðgerðir.
Námskeiðið hentar stjórnendum, millistjórnendum, mannauðsfólki, stefnumótendum, frumkvöðlum og öðrum sem vinna að þróun, nýsköpun og breytingum innan fyrirtækja og stofnana. Engar sérstakar forkröfur eru gerðar.
Á námskeiðinu er unnið án tölva. Með pappír og penna, ígrundun og verklegum æfingum skapa þátttakendur rými frá skjám og stafrænum verkfærum til að beina athyglinni að eigin skynfinningu, reynslu og hugsun.
29. janúar – 5. febrúar 2027
6 klst. – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
29. janúar kl. 9:00 – 12:00
5. febrúar kl. 9:00 – 12:00
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám3. nóvember – 4. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
75.800 kr.
Staðnám4. nóvember 2026
3 klst. – 1 skipti
37.200 kr.
Staðnám5. nóvember – 6. nóvember 2026
8 klst. – 2 skipti
80.200 kr.
Staðnám5. nóvember – 19. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
52.300 kr.
Fjarnám5. nóvember 2026
3 klst. – 1 skipti
36.200 kr.
Staðnám11. nóvember – 18. nóvember 2026
6 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
39.900 kr.
Staðnám12. nóvember 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
32.900 kr.
Staðnám13. nóvember 2026
4 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
35.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.