Fara í meginmál

Tauga­fjöl­breyti­leiki á vinnu­stað

Starfs­fólk vinn­ur, lærir og á sam­skipti á ólík­an hátt. Hvernig getur þú sem stjórn­andi skap­að vinnu­um­hverfi þar sem fleiri fá notið styrk­leika sinna?

Á þessu námskeiði færðu grunnskilning á taugafjölbreytileika og hagnýt verkfæri til að styðja við skynsegið starfsfólk og skapa skýrara og aðgengilegra vinnuumhverfi fyrir alla. Fjallað er meðal annars um ADHD, einhverfu, lesblindu og dyspraxíu og hvernig ólíkar þarfir geta birst í daglegu starfi, með eða án formlegrar greiningar.

Við skoðum meðal annars hvernig taugafjölbreytileiki getur tengst samskiptum, skipulagi, stýrifærni og upplifun af vinnuumhverfinu, hvers vegna starfsfólk segir ekki alltaf frá þörfum sínum og hvernig stjórnendur geta tekið viðkvæm samtöl á uppbyggilegan hátt.

Megináherslan er á hagnýtar leiðir; skýrari samskipti og væntingar, einfaldar aðlaganir og vinnulag byggt á algildri hönnun (e. Universal Design). Margar þessara lausna kosta lítið eða ekkert og geta gagnast öllu starfsfólki.

Kennt er með stuttri fræðslu, umræðum, raunhæfum dæmum og æfingum. Þátttakendur fá yfirsýn, orðalag og verkfæri, en ekki tæmandi lausnir fyrir hvert einstakt tilvik.

Námskeiðið er ekki greiningar- eða meðferðarnámskeið og veitir ekki lögfræðiráðgjöf.

Námskeiðið er ætlað stjórnendum, mannauðsfólki og öðrum sem bera ábyrgð á starfsfólki eða vinnuumhverfi, svo sem teymisstjórum, verkefnastjórum og fulltrúum í vinnuvernd. Það hentar sérstaklega vel þeim sem vilja skilja betur ólíkar þarfir starfsfólks, fá einföld verkfæri sem hægt er að nota strax í starfi og verða öruggari í samtölum um stuðning og aðlögun. Engin fyrri þekking á taugafjölbreytileika er nauðsynleg.

Þátttakendur fá með sér af námskeiðinu hagnýta verkfærakistu: orðalagsleiðbeiningar, gátlista og dæmi um einfaldar aðlaganir. Unnið er með raunhæf dæmi. Þátttakendur geta einnig komið með almennar spurningar og aðstæður úr eigin starfi, án nafna eða persónugreinanlegra upplýsinga. Í upphafi er samið um trúnaðarreglur fyrir umræður.

Staðnám

11. mars 2027

4 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

11. mars kl. 8:30 – 12:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

40.500 kr.

Snemmskráning: 1. mars. Almennt verð: 44.600 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Taugafjölbreytileiki á vinnustað

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.