Bílastæði við grasflöt

Leið­bein­ing­ar fyrir áskrift í Parka app­inu

Leiðbeiningar

Svona trygg­ir þú þér áskrift að lang­tíma­stæð­um (H2) í gegn­um Parka appið

1. Opnaðu Parka appið í símanum þínum

2. Til eru tvær leiðar að skráningu í áskrift

  1. Veldu Reykjavík – Ofanjarðar og finndu Háskóli Íslands H2
  2. eða veldu „Stillingar“ efst í hægra horninu og þar getur þú valið að skrá þig í áskrift.
Skjáskot úr Parka appinu

Hér má sjá aðferðirnar tvær

3. Ýttu á „Gerast áskrifandi“ til að hefja skráningu (Ef áskriftarleið birtist ekki þarf að uppfæra appið).

4. Kerfið biður þig um að auðkenna þig sem starfsmann eða nemanda HÍ. Þar sem það á ekki við um nemendur Endurmenntunar, þá skaltu velja „Nú þegar með heimild, smelltu hér“

5. Þar slærðu inn netfangið þitt.

6. Þú færð staðfestingarpóst á uppgefið netfang. Smelltu á staðfestingartengilinn í póstinum til að ljúka auðkenningu.

Skjáskot í Parka appinu

Staðfestingarpósturinn

Ef upp kemur villumelding í þessu skrefi þarf að loka Parka appinu og opna það aftur. Þá skal aftur velja Reykjavík – ofanjarðar, Háskóli Íslands H2 og ýta aftur á skrá í áskrift.

Þá ætti appið að koma þér áfram í næsta lið.

7. Ef skráning er samþykkt birtist listi yfir áskriftarvalkosti (í þessu tilfelli aðeins einn). Veldu „Bæta við nýrri“ og veldu áskriftina.

Skjáskot úr Parka appinu

Aðeins ein áskriftarleið ætti að birtast

8. Fylltu inn greiðsluupplýsingar og bílnúmer ef þú ert nýr notandi Parka. Ef þú hefur nú þegar fyllt inn allar upplýsingar, ýttu á „Greiða“.

Skjáskot úr Parka-appinu

Skráðu ökutæki og greiðsluupplýsingar

9. Þegar áskriftin er virk mun aðalskjárinn sýna skilaboð sem merkja að bílnúmeralesning sé virk á bílastæðum Háskóla Íslands.

Athugið að áskrift endurnýjast sjálfkrafa mánaðarlega frá skráningardegi, nema valið sé að segja henni upp.

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.