Lifðu í sátt - lærðu að nota aðferðir ACT

5 stjörnur
Á þessu sex vikna námskeiði verður lögð áhersla á að kynna fyrir þátttakendum sálfræðilegan sveigjanleika til að auka þrautseigju og seiglu.

ACT (Acceptance and Commitment Therapy) er eitt örast vaxandi gagnreynda meðferðarformið í heiminum í dag. Það telst til þriðju bylgju hugrænnar atferlismeðferðar og miðar að því að auka sálfræðilegan sveigjanleika. ACT byggir á þeirri kenningu að í stað þess að bæla eða forðast sársaukafulla atburði séu núvitund og sátt sveigjanlegri viðbrögð gagnvart áskorunum lífsins.

Á námskeiðinu sem spannar sex vikur verður lögð áhersla á að kynna fyrir þátttakendum sálfræðilegan sveigjanleika til að auka þrautseigju og seiglu.

Með því að upplifa hugsanir, líkamleg viðbrögð og tilfinningar á sveigjanlegri hátt er hægt að draga úr neikvæðum afleiðingum þeirra.

Námskeiðið gagnast öllum sem hafa áhuga á að læra nýjar leiðir til að takast á við sjálfa sig og áskoranir í lífinu.

„Hjördís er lifandi og skemmtilegur kennari og opnar aðferðafræði ACT á aðgengilegan máta."

Staðnám

23. september – 28. október 2026

12 klst – 6 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

23. september kl. 20–22

30. september kl. 20–22

7. október kl. 20–22

14. október kl. 20–22

21. október kl. 20–22

28. október kl. 20–22

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
62.900 kr.

Snemmskráning: 12. september. Almennt verð: 69.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Lifðu í sátt - lærðu að nota aðferðir ACT

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.